Erlent

Jennifer Aniston komin í sambúð

Jennifer er farin að búa með kærastanum.
Jennifer er farin að búa með kærastanum. Mynd/AFP


Leikkonan Jennifer Aniston seldi nýverið húsið sitt í Beverly Hills á litlar 38 milljónir dollara og hefur nú að sögn heimildarmanna flutt inn í leiguhúsnæði ásamt kærastanum, leikaranum og leikstjóranum Justin Theroux. Jennifer og Justin eru augljóslega ekkert að tvínóna við hlutina en þau hafa verið par síðan í maí síðastliðnum. Að sögn vina fannst Jennifer gamla húsið sitt full íburðarmikið og langaði að einfalda líf sitt aðeins.

Skv. heimildum tók Jennifer húsið sem er í Hollywood hæðunum og búið tveimur svefnherbergjum á leigu þann 1.ágúst sl.og ætlar parið að gera sér það að góðu þar til þau finna hið fullkomna framtíðarhúsnæði. Þau eru þó ekki á flæðiskeri stödd þar sem heimilið býður upp á sundlaug, spa og glæsilegan útsýnispall.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×