Erlent

Uppreisnarmenn segja son Gaddafi fallinn



Um leið og fréttir berast af því að hluti fjölskyldu Gaddafi hafi flúið til Alsír segja yfirmenn uppreisnarmanna, Khami Gaddafi, þann son einræðisherrans sem mest hefur verið óttast, hafa verið skotinn til bana.

Skv. fréttamanni Sky fréttastofunnar hefur maður sem kveðst vera lífvörður Khami staðfest að hann hafi látist þegar eldflaug var skotið úr Apache þyrlu Nató á brynvarðan Toyota Land Cruiser jeppa hans. Er loftárásin sögð hafa verið um 60 km sunnan við höfuðborgina Trípólí. Skv. fréttamanninum var sprengingin svo kröftug að nærliggjandi tré stóðu í ljósum logum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×