Erlent

Irene er skilaboð frá Guði

Michele Bachmann sækist eftir því að verða forsetaefni Repúblikana.
Michele Bachmann sækist eftir því að verða forsetaefni Repúblikana. Mynd/AFP
Fellibylurinn Irene er skilaboð frá guði, segir Michele Bachmann, hugsanlegt forsetaefni Repúblikana í Bandaríkjunum. Hún telur fellibylinn sem og jarðskjálfta sem varð í austurhluta Bandaríkjanna í síðustu viku öruggt merki þess að Washington þurfi á nýjum leiðtoga og nýjum stefnumiðum að halda.

„Washington, D. C., maður hefði haldið þið væruð búin að ná skilaboðunum. Jarðskjálfti. Fellibylur. Eruð þið að hlusta?" sagði hún á fundi í Flórída nú á laugardaginn var. Hún uppskar pen hlátrasköll hjá áheyrendum sínum.

Bachmann er í miklu uppáhaldið hjá Teboðs-hreyfingunni sem og félagslyndum trúuðum íhaldsmönnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×