Erlent

Verður sjötti forsætisráðherran á fimm árum

Yoshihiko Noda
Yoshihiko Noda
Japanski lýðræðisflokkurinn hefur útnefnt fjarmálaráðherrann Yoshihiko Noda sem næsta forsætisráðherra-efni flokksins. Gert er ráð fyrir því að þingið muni samþykkja Noda sem næsta forsætisráðherra á morgun, þriðjudag.

Naoto Kan, fyrrum forsætisráðherra, sagði af sér embætti á föstudaginn eftir að frumvörp sem tengjast uppbyggingu eftir jarðskjálftann í mars fór í gegnum þingið. Hann hefur mikið verið gagnrýndur fyrir aðgerðaleysi og legið undir miklu þrýstingi.

Ef allt gengur eftir í þinginu á morgun, mun Noda verða sjötti forsætisráðherra landsins á fimm árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×