Erlent

Tom Jones á spítala

Tom Jones í fjöri.
Tom Jones í fjöri.
Stórsöngvarinn Tom Jones þurfti að fara á spítala í Mónakó í gær vegna alvarlegrar ofþornunar. Tom, sem er 61 árs gamall, er á tónleikaferðalagi og átti að spila í gærkvöldi í borginni. Tónleikunum var aflýst og þegar fóru kjaftasögur á kreik um að hann hefði fengið hjartaáfall.

Það reyndist þó ekki rétt samkvæmt talsmönnum kappans sem sögðu hann vera að jafna sig á vatnsleysinu.

Tónleikarnir í Mónakó áttu að vera þeir síðustu í þriggja mánaða tónleikaferð söngvarans.

Tom hefur verið í miklu líkamsræktarátaki og lagt af tæp þrettán kíló samkvæmt fréttastofu BBC.

Galdurinn er í sjálfu sér ekki flókinn; hann byrjaði að borða hollari mat og minnka áfengisdrykkjuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×