Erlent

Farsími í rassvasa stöðvaði byssukúlu

Konan var með farsímann í rassvasanum.
Konan var með farsímann í rassvasanum.
Kona í Colarado Springs í Bandaríkjunum heldur því fram að farsíminn hennar, sem hún geymdi í rassvasanum, hafi bjargað lífi sínu samkvæmt fréttasíðunni Gazette.com.

Svo virðist sem ókunnugur maður hafi byrjað að skjóta, að því er virðist, að tilefnislausu allt í kringum sig í íbúðaþyrpingu í borginni. Alls virðist maðurinn hafa skotið tíu sinnum úr byssunni, meðal annars inn í eina íbúð. Þannig lýsti íbúinn fyrir lögreglunni að kúlan hefði farið rétt hjá höfðinu hans og í vegginn á móti.

Hið undarlega virðist þó vera, að kona sem stóð talsvert frá, fékk kúlu beint í rassinn. Aftur á móti virðist farsíminn hafa stöðvað kúluna með þeim afleiðingum að hún slapp nokkurn vegin ómeidd frá skothríðinni. Síminn aftur á móti gjöreyðilagðist.

Lögreglan í Colarado Springs rannsakar málið en engan sakaði í skothríðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×