Erlent

Undrameðal Berlusconi er jurtate

Berlusconi var hýr og reifur eftir að fótboltalið hans sigraði og tilkynnti í gleðinni að kraftameðal hans væri jurtate.
Berlusconi var hýr og reifur eftir að fótboltalið hans sigraði og tilkynnti í gleðinni að kraftameðal hans væri jurtate. Mynd/AFP
Hinn fjörmikli forsætisráðherra Ítala,Silvio Berlusconi, hefur ljóstrað upp leyndarmálinu á bak við krafta sína, jafnt pólitíska sem aðra. Undrameðalið er jurtate. Þetta tilkynnti hann eftir að hann horfði á fótboltalið sitt, AC Milan, vinna sigur á erkifjendunum í Juventus.

Berlusconi segir drykinn einnig vera grunninn í sérstökum heilsukúr sem hefur gert honum kleift að missa 4 kg á einni viku. Hann hefur grennst svo undanfarið að ítalska blaðið La Repubblica sagði í frétt á miðvikudaginn að hann væri „ekkert orðinn nema skinn og bein".

Það eru fleiri í stjórnmálunum í sérstökum heilsukúrum, en eins og kunnugt er hefur formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð, tekið upp sérstakan íslenskan kúr. Fróðlegt verður að sjá hvort hann virkar eins vel og jurtateið hans Berlusconi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×