Erlent

Hnífaárás í New York

Mynd/AFP
Nakinn ungur maður gekk berserksgang í íbúðarblokk í New York í dag. Maðurinn var vopnaður eldhúshníf, drap einn og særði fjóra. Hann virðist hafa gengið milli íbúða, knúið dyra og ráðist á þann sem opnaði, segir í frétt vefmiðilsins www.mailonsunday.co.uk

Adolfo Benitez, sem vinnur í byggingu í grendinni varð vitni að atburðinum. „Ég sá einhvern nakinn gæja hlaupa um með 15 cm hníf," sagði hann.

Maðurinn sem er 23 ára hefur verið handtekinn af lögreglunni og ákærður fyrir morð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×