Erlent

Nakin Nigella hneykslar nágranna sína

Nágrannar stjörnukokksins Nigellu Lawson kvarta nú undan því að þeir geta séð þessa kynþokkafullu konu ganga um nakta í íbúð sinni.

Í frétt Daily Mail um málið segir að Lawson hafi lofað nágrönnum sínum að rannsaka þetta mál. Stjörnukokkurinn og eiginmaður hennar hafa nýlega eytt milljónum punda í að endurbæta lúxusíbúð sína í Chelsea hverfinu í London.

Svo virðist sem hönnunargalli í þessum endurbótum valdi því að næstu nágrannar geta séð Lawson nakta inn um glugga íbúðarinnar, einkum þegar hún notar baðherbergi sitt en það mun vera hurðarlaust.

Einn nágranna Lawson segir að þeir séu alls ekki að bera sig eftir því að horfa á stjörnukokkinn á Evuklæðum en bara komist ekki hjá því þegar þeim er litið yfir til íbúðar hennar.

Sjálf mun Lawson hafa nær dáið úr hlátri þegar hún frétti fyrst af þessum kvörtunum frá nágrönnum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×