Erlent

Átta börn fórust í eldsvoða

Þrír náðu að flýja út úr brennandi húsinu
Þrír náðu að flýja út úr brennandi húsinu Mynd/AFP
Ellefu fórust, þar á meðal átta börn, þegar eldur kom upp í tveggja hæða húsi bænum Logan í Ástralíu á miðnætti. Fjölmiðlar á svæðinu segja að tvær fjölskyldur hafi búið í húsinu en þrír náðu að flýja út úr húsinu. Börnin er sem brunnu inni eru á aldrinum ellefu til sautján ára en ríkisstjóri Queensland-héraðsins hefur sent sérstaka ráðgjafa í skóla barnanna til að huga að bekkjarsystkinum og vinum þeirra. Eldsupptök eru ókunn en rannsókn stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×