Erlent

Aukinn kraftur færist í mótmælin í Sýrlandi

Aukinn kraftur hefur færst í mótmæli landsmanna í Sýrlandi gegn ríkisstjórn landsins en föstumánuði múslima Ramadan er að ljúka. Þúsundir manna flykktust út á götur helstu borga og kröfðust afsagnar Bashar al-Assads forseta og stjórnar hans. Mannréttindasamtök segja að lögregla hafi skotið á mótmælendur og að sjö hafi fallið hið minnsta.

Sameinuðu þjóðirnar segja að 2200 manns hafi fallið í landinu frá því átökin hófust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×