Erlent

Nýr forsætisráðherra Japans

Yoshihiko Noda
Yoshihiko Noda
Neðri deild japanska þingið samþykkti í morgun fjármálaráðherran fyrrverandi Yoshihiko Noda sem nýjan forsætisráðherra landsins. Hann tekur við embætti af Naoto Kan sem sagði af sér embætti á dögunum.

Noda var útnefndur af flokki sínum, lýðræðisflokknum, sem næsta forsætisráðherraefni. Hans bíða nú erfið verkefni, þar á meðal uppbygginarstarf eftir jarðskjálftann í mars síðastliðnum og snúa efnahag landsins á réttan kjöl á ný.

Noda er sjötti forsætisráðherra landsins á fimm árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×