Erlent

Al-Saadi fær hæli í Níger

Mynd/AP
Al-Saadi, einn þriggja sona Múammars Gaddafí, hefur fengið hæli í Níger. Amadou Mourou, dómsmálaráðherra í Níger, staðfesti að Al-Saadi væri kominn til landsins í gær og nú hefur hann staðfest að syninum hafi verið veitt hæli af mannúðarástæðum.

Nokkrir háttsettir embættismenn í Líbíu hafa flúið yfir til Níger undanfarna daga. Enn er leitað að Múammar Gaddafí sjálfum, sem uppreisnarmenn hafa hrakið frá völdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×