Erlent

Obama las upp úr Biblíunni

Barrack Obama.
Barrack Obama.
Minningarathöfn vegna hryðjuverkanna þann 11. september 2001 í New York fer nú fram. Forseti Bandaríkjanna, Barack Obama, hélt ræðu fyrr í dag, þar sem hann las meðal annars upp úr biblíunni.

Þá hélt Joe Biden, varaforseti einnig ræðu en hann þakkaði Bandaríska hernum fyrir fórnfýsn í stríðum gegn hryðjuverkum.

Minnisvarði var afhjúpaður en í honum eru nöfn þeirra sem létust ú hryðjuverkunum letruð auk þeirra sex sem létust í hryðjuverkunum á Tvíburaturnanna árið 1993.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×