Erlent

Sonur Gaddafís farinn til Niger

Saadi Gaddafi.
Saadi Gaddafi. Mynd/AP
APAl-Saadi, einn þriggja sona Múammars Gaddafí, er farinn frá Líbíu til Níger. Amadou Mourou, dómsmálaráðherra í Níger, staðfesti þetta í gær.

Ráðherrann segir að nígerskir hermenn hafi séð til hans í norðanverðu Níger.

Hann tók hins vegar fram að Al-Saadi hafi engin réttindi hlotið í landinu, sem þýðir að hann hefur ekki fengið stöðu flóttamanns.

Nokkrir háttsettir embættismenn í Líbíu hafa flúið yfir til Níger undanfarna daga. Enn er leitað að Múammar Gaddafí sjálfum, sem uppreisnarmenn hafa hrakið frá völdum.

- gb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×