Erlent

Tíu látnir eftir sprengjutilræði í Afganistan

Myndin er úr safni.
Myndin er úr safni.
Tíu eru látnir eftir tvö sprengjutilræði í Afganistan í gær. Fyrri sprengjunni var komið fyrir á vegi í þorpi sem kallast Barmal. Þegar bíl var ekið á sprengjuna sprakk hún með þeim afleiðingum að tvær konur og fjórir karlar fórust. Níu til viðbótar særðust.

Þetta var um miðjan dag í gær. Önnur sprengja, alveg eins og sú fyrri sprakk svo í gærkvöld í Kunduz héraði, en þar fórust fjórir. Karl, kona og tvö börn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×