Erlent

Fjórir handteknir grunaðir um hryðjuverk í Svíþjóð

Gautaborg. Myndin er úr safni.
Gautaborg. Myndin er úr safni.
Fjórir hafa verið handteknir í Svíþjóð grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk þar í landi. Samkvæmt fréttavef BBC þá var fólkið handtekið í Gautaborg í gærkvöldi. Áður hafði lögreglan meðal annars rýmt listamiðstöð í miðborg Gautaborgar þar sem meira en 400 manns voru samankomnir.

Ítarleg leit var framkvæmd á safninu en lögreglan vildi ekki gefa upp að hvort hún væri að leita að sprengjum eða einhverju öðru. Skömmu síðar voru svo fjórir handteknir, skammt frá safninu og eru þeir nú í haldi lögreglu, sem verst frétta af málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×