Erlent

Skotárás við moskuna á Vesturbrú - einn látinn

Að minnsta kosti tveir voru skotnir um klukkan hálfátta í morgun við moskuna á Vesturbrú í Kaupmannahöfn. Annar þeirra, 21 árs gamall maður af pakistönskum uppruna, er látinn af sárum sínum að því er fram kemur hjá danska ríkisútvarpinu. Mikið lið lögreglu er nú statt við moskuna.

Svo virðist sem skotin hafi komið úr bifreið sem ekið var framhjá moskunni og að minnsta kosti tuttugu skotum hleypt af en í dag lýkur föstumánuði múslima Ramadan. Enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn vegna málsins.

Lögreglan mun þó vera að leita að manni sem sást nálægt moskunni. Hann var klæddur í frakka og ferðaðist um í sendiferðabíl.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×