Erlent

Spilavíti brann til grunna - 53 fórust

Frá brunanum
Frá brunanum mynd/afp
Að minnsta kosti fimmtíu og þrír fórust og átta slösuðust þegar spilavíti brann til kaldra kola í bænum Monterrey í Mexíkó í nótt.

Vopnaðir menn réðust inn í spilavíti og ógnuðu þar gestum með hríðskotabyssum og helltu bensíni um veggi og gólf. Áður en gestirnir náðu að flýja út kveiktu þeir í og varð húsið alelda á stuttum tíma. Herinn aðstoðar nú sjúkraflutningamenn og slökkvilið við að leita í rústunum en búist er við að tala látinna eigi eftir að hækka enn frekar.

Árásarmennirnir eru ófundnir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×