Erlent

Verður 115 ára í dag

Elsta kona í heimi, hin bandaríska Besse Cooper, heldur upp á 115 ára afmæli sitt í dag.

Veislan verður á elliheimili sem hún dvelur á og munu fjölskyldumeðlimir og forsvarsmenn heimsmetabókar Guinness mæta í veisluna en þeir síðarnefndu munu afhenta henni viðurkenningarskjal sem staðfestir að hún sé sú elsta í heiminum.

Cooper missti titilinn í janúar síðastliðnum, þegar það kom í ljós að brasilísk kona var fjörutíu og fimm dögum eldri. Hún lést hinsvegar í júní og fékk hin bandaríska titilinn aftur.

Cooper á tólf barnabörn og fjöldan allan af barna-barnabörnum og barna-barna-barnabörnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×