Erlent

Sprengdu sig í loft upp í Tsjetsjeníu

Sprengjurnar sprungu í borginni Grozný
Sprengjurnar sprungu í borginni Grozný mynd/afp
Að minnsta kosti sjö eru fallnir og átján eru særðir eftir að tveir menn sprengdu sig í loft upp í Tsjetsjeníu í gærkvöldi. Fyrri sprengjan sprakk þegar lögreglumenn ætluðu að handtaka mann í miðborginni og athuga skilríki hans.

Sú síðari sprakk á svipuðum slóðum. Leiðtogi landsins Ramzan Kadyrov segir að fimm lögreglumenn séu á meðal þeirra látnu. Uppreisnarmenn hafa barist fyrir sjálfstæði landsins frá árinu 1990 en síðustu ár hefur baráttan beinst meira að því að koma íslamskri stjórn á í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×