Erlent

Elsti maðurinn til að synda yfir Ermarsundið

Koma svo gamli!
Koma svo gamli!
Roger Allsopp, ellilífeyrisþegi með krabbamein, sló í gær heimsmet þegar hann var elsti maðurinn til að synda yfir Ermarsundið. Það gerði hann á 17 klukkustundum og 51 mínútu en sundkappinn er sjötíu ára og fjögurra mánaða gamall. Heimsmetabók Guinness staðfesti heimsmetið í gær.

Allsopp hefur reynt áður við heimsmetið en alltaf þurft að hætta vegna veðurs.

Hann sagði við fjölmiðla í gær að árangurinn væri mikill sigur fyrir sig en það sem hafi komið honum yfir sundið hafi verið sú tilfinning að safna peningum fyrir rannsóknir á krabbameini.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×