Erlent

Fangar pyntaðir í Sýrlandi

Sýrland
Sýrland mynd úr safni
Mannréttindasamtökin Amnesty International segja í nýrri skýrslu að fjöldi fanga hafi verið pyntaðir til dauða í Sýrlandi á síðastliðnum fimm mánuðum. Að minnsta kosti áttatíu og átta hafi látist vegna pyntinganna, þar á meðal tíu börn.

Fangarnir hafi verið barðir, brenndir, gefið raflost og þurft að sæta öðrum misþyrmingum. Allir þeir sem hafi látist vegna pyntinganna eigi það sameiginlegt að hafa tekið þátt í mótmælum gegn yfirvöldum. Sá yngsti sé þrettán ára gamall.

Samtökin vilja að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sendi upplýsingarnar til alþjóðaglæpadómstólsins til frekari rannsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×