Erlent

Rick Perry tekur forystuna

Rick Perry ríkisstjóri Texas hefur tekið forystuna í baráttu þeirra sem sækjast eftir því að verða næsta forsetaefni Repúblikana.

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallup nýtur hann 29% fylgis meðal Repúblikana en næsta á eftir koma Mitt Romney með 17% fylgi og Ron Paul með 13%.

Vinsældir Barcaks Obama Bandaríkjaforseta hafa aldrei verið minni og ný könnun í Flórída sýnir að Obama myndi tapa kosningu þar hvort sem Perry, Romney eða Michele Bachmann væru í framboði á móti honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×