Körfubolti

Jakob Örn fór mikinn í sigri Drekanna

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. mynd / valli
Jakob Örn Sigurðarson og Hlynur Bæringsson. mynd / valli
Sundsvall Dragons vann í kvöld sigur, 88-83,  á LF Basket í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik en leikurinn fór fram á heimavelli Drekanna. 

Jakob Örn Sigurðarson var atkvæðamestur í liði Drekanna og gerði 22 stig en Hlynur Bæringsson skoraði 14 stig.

Ægir Þór Steinarsson skoraði ekki fyrir Sundsvall Dragons í kvöld en hann hirti sjö fráköst.

Þetta var þriðji sigurleikurinn í röð hjá Íslendingaliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×