Menning

Ástin á tímum ölæðis

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Valur Gunnarsson, höfundur Síðasta elskhugans, ferðaðist til Rússlands, Þýskalands, Bandaríkjanna og Kanada í undirbúningsskyni.
Valur Gunnarsson, höfundur Síðasta elskhugans, ferðaðist til Rússlands, Þýskalands, Bandaríkjanna og Kanada í undirbúningsskyni. Mynd/Sigtryggur Ari
Síðasti elskhuginn er ný bók eftir Val Gunnarsson, en hann hefur áður gefið út bókina Konungur norðursins.

„Þetta er eins konar saga um ástina í skugga Búsáhaldabyltingar,“ segir Valur.

„Á meðan byltingarlogarnir fjara út á Austurvelli tekur leitin að ástinni við. Hún færir okkur frá Moskvu og til Montreal og að lokum til sveitar í grennd við Húsavík,“ bætir hann við.

Hver staður hefur sín sérkenni og Valur segir samskipti kynjanna afar mismunandi á hverjum stað.

„Í Rússlandi hefur lítið breyst síðan á 19. öld. Hér eiga karlmenn að vera karlmenn og konur að vera konur, en ýmislegt kraumar undir yfirborðinu. Á meginlandinu hafa menn aðrar hugmyndir um ástarsambönd, enginn vill binda sig lengur og það er enginn sem segir að ástarsambönd eigi aðeins að innihalda tvær manneskjur. Á hinu napra Íslandi heldur fólk tryggð við hvort annað svo lengi sem það endist, en engin talar saman nema í ölæði og engin leið er til að nálgast hvort annað utan baranna.“

Valur segir mikla rannsóknarvinnu búa að baki bókinni, og hefur hann farið í rannsóknarleiðangra til Rússlands, Þýskalands, Bandaríkjanna og Kanada og jafnvel hætt sér stöku sinnum inn á íslenska bari á meðan á ritun hennar stóð.

Síðasti elskhuginn kemur út á laugardag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×