Milik styrkti stöðu sína í baráttunni við Kolbein Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. nóvember 2014 13:22 Kolbeinn í baráttu við Andres Iniesta í leik Ajax og Barcelona í Meistaradeild Evrópu í síðasta mánuði. Vísir/Getty
Landsliðsframherjinn Kolbeinn Sigþórsson lék síðustu 15 mínútur leiksins þegar Ajax vann Cambuur með fjórum mörkum gegn tveimur á útivelli í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Kolbeinn, sem verður væntanlega í eldlínunni með íslenska landsliðinu sem mætir Belgíu og Tékklandi seinna í vikunni, kom inn á 75. mínútu fyrir pólska framherjann Arkadiusz Milik sem gerði tvö af mörkum Ajax. Cambuur náði reyndar forystunni strax á 2. mínútu með marki Sebastian Steblecki, en Milik jafnaði metin á 19. mínútu. Aðeins fjórum mínútum síðar kom Davy Klaassen hollensku meisturunum yfir og þannig stóðu leikar fram á 60. mínútu þegar Milik skoraði sitt annað mark og þriðja mark Ajax. Það var síðan Anwar El Ghazi sem skoraði fjórða og síðasta mark Ajax á 78. mínútu eftir sendingu frá Kolbeini. Þetta var önnur stoðsendingin sem íslenski framherjinn gefur í deildinni í vetur. Cambuur-maðurinn Bartholomew Ogbeche skoraði lokamark leiksins úr vítaspyrnu á 90. mínútu og minnkaði muninn í 2-4. Kolbeinn á í harðri baráttu við áðurnefndan Milik um sæti í Ajax-liðinu, en sá pólski styrkti eflaust stöðu sína með mörkunum tveimur í dag. Milik hefur skorað fimm mörk í hollensku deildinni gegn þremur hjá Kolbeini. Pólverjinn hefur að auki aðeins þurft 347 mínútur til að skora mörkin sín fimm á meðan Kolbeinn hefur þurft 742 mínútur til að skora sín þrjú mörk.
Fótbolti Tengdar fréttir Messi afgreiddi Ajax | Sjáðu mörkin Barcelona er komið áfram í Meistaradeildinni eftir 0-2 sigur á Ajax þar sem Lionel Messi jafnaði markamet deildarinnar. 5. nóvember 2014 16:39 Þægilegt hjá Ajax Kolbeinn Sigþórsson spilaði allan leikinn í þægilegum sigri Ajax á FC Dordrecht í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 1. nóvember 2014 19:10 Kolbeinn skoraði í jafntefli Ajax | Sjáðu markið Kolbeinn Sigþórsson skoraði mark Ajax í jafntefli gegn Twente í hollensku úrvalsdeildinni. Ajax er í öðru sæti deildarinnar eftir leiki dagsins. 18. október 2014 20:45 Sjáðu mark Kolbeins fyrir Ajax | Myndband Skoraði í 1-1 jafntefli Ajax gegn Twente í hollensku úrvalsdeildinni. 19. október 2014 15:14 Kolbeinn fékk 72 mínútur í tapi fyrir Barca - sjáðu mörk Börsunga Barcelona vann 3-1 sigur á hollenska liðinu Ajax á Nývangi í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Lionel Messi var maðurinn á bak við bæði tvö fyrstu mörkin sem komu í fyrri hálfleik. 21. október 2014 12:53 Suárez snýr aftur "heim" til Ajax í kvöld Luis Suárez og félagar í Barcelona eru mættir til Hollands þar sem þeir mæta Ajax á Amsterdam ArenA í Meistaradeildinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD og hefst leikurinn klukkan 19.45. 5. nóvember 2014 15:30 Hörður Björgvin eini nýliðinn Litlar breytingar á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Belgíu og Tékklandi. 7. nóvember 2014 09:17 Mest lesið McGregor fundinn sekur og þarf að borga tugi milljóna í skaðabætur Sport Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Íslenski boltinn „Bjóst bara við því að við værum að fara vinna árið eftir“ Körfubolti Hvað gera flokkarnir fyrir afreksfólk í íþróttum? Sport Stelpurnar okkar rændar jöfnunarmarki? Handbolti Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Fótbolti Í beinni: Leicester - Chelsea | Maresca mætir gamla liðinu sínu Enski boltinn Aðalþjálfari Ítalíu var með hausverk og horfði ekki á seinni hálfleik Körfubolti „Tími til kominn að taka afstöðu gegn Ísrael“ Sport Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Enski boltinn Fleiri fréttir Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Í beinni: Leicester - Chelsea | Maresca mætir gamla liðinu sínu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ed Sheeran hjálpaði Ipswich að ná í leikmann rétt fyrir Taylor Swift tónleika Alexia Putellas með sitt tvö hundruðasta mark fyrir Barcelona Nýr Etihad leikvangur hinum megin við Atlantshafið Guardiola samdi til ársins 2027 Segja að Haaland og félagar fái gjafapakka frá FIFA Sædís og félagar fyrstar til að stoppa Bæjara Rannsókn á hegðun David Coote enn í fullum gangi Tuchel „stelur“ Hilario frá Chelsea og tekur hann inn í teymið Danir vilja halda úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Amorim vill að United fái Gomes aftur Martröð fyrirliða Chelsea heldur áfram Neville gagnrýnir Bandaríkjaför Rashford og Casemiro Alfreð hættur: „Takk fyrir allt sem þú hefur gefið mér og minni fjölskyldu“ Kósovó áfrýjar og Svíar bíða spenntir: „Barátta gegn rasisma“ Sagður hafa tvo leiki til að bjarga starfinu Sjá meira
Messi afgreiddi Ajax | Sjáðu mörkin Barcelona er komið áfram í Meistaradeildinni eftir 0-2 sigur á Ajax þar sem Lionel Messi jafnaði markamet deildarinnar. 5. nóvember 2014 16:39
Þægilegt hjá Ajax Kolbeinn Sigþórsson spilaði allan leikinn í þægilegum sigri Ajax á FC Dordrecht í hollensku úrvalsdeildinni í dag. 1. nóvember 2014 19:10
Kolbeinn skoraði í jafntefli Ajax | Sjáðu markið Kolbeinn Sigþórsson skoraði mark Ajax í jafntefli gegn Twente í hollensku úrvalsdeildinni. Ajax er í öðru sæti deildarinnar eftir leiki dagsins. 18. október 2014 20:45
Sjáðu mark Kolbeins fyrir Ajax | Myndband Skoraði í 1-1 jafntefli Ajax gegn Twente í hollensku úrvalsdeildinni. 19. október 2014 15:14
Kolbeinn fékk 72 mínútur í tapi fyrir Barca - sjáðu mörk Börsunga Barcelona vann 3-1 sigur á hollenska liðinu Ajax á Nývangi í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Lionel Messi var maðurinn á bak við bæði tvö fyrstu mörkin sem komu í fyrri hálfleik. 21. október 2014 12:53
Suárez snýr aftur "heim" til Ajax í kvöld Luis Suárez og félagar í Barcelona eru mættir til Hollands þar sem þeir mæta Ajax á Amsterdam ArenA í Meistaradeildinni í kvöld en leikurinn verður í beinni á Stöð 2 Sport og Stöð 2 Sport HD og hefst leikurinn klukkan 19.45. 5. nóvember 2014 15:30
Hörður Björgvin eini nýliðinn Litlar breytingar á íslenska landsliðinu fyrir leikina gegn Belgíu og Tékklandi. 7. nóvember 2014 09:17