Fótbolti

Rooney: Við verðum að spila betur

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Smalling fagnar sigurmarki sínu í kvöld.
Smalling fagnar sigurmarki sínu í kvöld. vísir/getty
Wayne Rooney, fyrirliði enska landsliðsins, var ánægður með sigur Englands gegn Portúgal en ekki með frammistöðuna.

England var einum manni fleiri frá 35. mínútu en kom boltanum ekki inn fyrr en fjórum mínútum fyrir leikslok. Þá skoraði Chris Smalling eina mark leiksins.

„Við unnum leikinn en þetta var erfitt. Við vorum samt betra liðið,“ sagði fyrirliðinn Rooney eftir leikinn.

„Við verðum að spila betur á EM. Við vitum það best sjálfir. Það er samt merki um styrkleika að vinna þó svo við spilum ekki vel.

„Við erum tilbúnir engu að síður fyrir átökin í Frakklandi. Við erum ekki að spila okkar besta bolta en höfum samt unnið þrjá leiki.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×