Fótbolti

Avni Pepa: Verður gaman að spila gegn Íslandi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Landsliðsmaður Kósóvó, Avni Pepa, fyrirliði ÍBV, var himinlifandi er hann komst að því eftir sigurinn á Stjörnunni í kvöld að landslið hans hefði verið veitt leyfi til þess að spila í undankeppni HM.

Þar verður Kósóvó í riðli með Íslandi og það þótti Avni ekki verra.

Sjá einnig: Kósóvó bætist í riðil Íslands fyrir undankeppni HM

„Ég var mjög ánægður að fá þessar fréttir. Þetta er erfiður riðill en verður rosalega gaman því ég þekki suma strákana í íslenska liðinu,“ sagði Avni en Kósóvó hefur spilað óopinbera vináttuleiki frá 2014.

„Auðvitað er það sérstakt fyrir mig að spila gegn Íslandi. Það verður gaman og vonandi tekst okkur að vinna Ísland,“ sagði Avni og brosti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×