Fótbolti

Agger leggur skóna á hilluna

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Daninn Daniel Agger hefur neyðst til þess að leggja skóna á hilluna aðeins 31 árs gamall.

Hann hefur verið að glíma við meiðsli og játar sig nú sigraðan. Agger lék síðast með Bröndby en var leikmaður Liverpool frá 2006 til 2014.

Agger, sem var fyrirliði danska landsliðsins, hélt blaðamannafund í dag þar sem hann greindi frá ákvörðun sinni.

„Þetta hefur verið mjög erfitt. Það er ekki auðvelt að taka þessa ákvörðun og ég hafði mínar efasemdir um hana. Í hvert skipti sem ég hef farið í gegnum þetta hef ég alltaf komist að sömu niðurstöðu. Það er best að hætta núna,“ sagði Agger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×