Fótbolti

Alfreð fær nýjan þjálfara

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Schuster hress í leik með Darmstadt.
Schuster hress í leik með Darmstadt. vísir/getty
Þýska félagið Augsburg, sem Alfreð Finnbogason leikur með, greindi frá ráðningu á nýjum þjálfara í dag.

Markus Weinzierl stígur frá borði og í hans stað kemur Dirk Schuster. Hinn 48 ára gamli Schuster skrifaði undir þriggja ára samning við félagið.

Schuster kemur til félagsins frá Darmstadt þar sem hann hafði verið þjálfari frá 2012. Hann hefur einnig þjálfað Stuttgarter Kickers og ASV Durlach.

Á tíma sínum sem leikmaður spilaði Schuster fjóra landsleiki fyrir Austur-Þýskaland og þrjá landsleiki fyrir sameinað landslið Þjóðverja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×