Fótbolti

Sjáðu þrennuna hjá Messi og stórbrotið jöfnunarmark Bólivíu

Anton Ingi Leifsson skrifar
Átta mörk voru skoruð í leikjunum tveimur í Suður-Ameríku bikarnum í nótt og eitt þeirra var af dýrari gerðinni.

Lionel Messi skoraði þrjú mörk fyrir Argentínu eftir að hafa komið inná sem varamaður í 5-0 sigri Argentínu.

Flottasta mark gærkvöldsins skoraði Jhasmany Campos þegar hann jafnaði fyrir Bólivíu gegn Chile í nótt. Hann skoraði þá algjöran þrumufleyg úr aukaspyrnu.

Þða dugði ekki til því Arturo Vidal skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Þú getur séð öll mörkin úr leikjunum í sjónvarpsglugganum hér að ofan og neðan.

Chile - Bolivía 2-1:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×