Íslensku strákarnir mætast í franska körfuboltanum í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. desember 2016 12:30 Martin Hermannsson og Haukur Helgi Pálsson eru á auglýsingunni fyrir leikinn. Mynd/Rouen Métropole Basket
Landsliðsmennirnir Martin Hermannsson og Haukur Helgi Pálsson eru í stórum hlutverkum hjá sínum liðum í frönsku b-deildinni í körfubolta og í kvöld er komið að stóru stundinni. Martin spilar með Charleville-Mézières en Haukur Helgi er hjá Rouen. Lið Martins og Hauks Helga mætast í kvöld í tíundu umferð deildarinnar og fer leikurinn fram á heimavelli Martins og félaga. Martin Hermannsson hefur verið frábær í allan vetur en hann er með 18,1 stig og 5,7 stoðsendingar að meðaltali í leik og hefur hitt úr 52 prósent skota sinna og 88 prósent vítanna. Haukur Helgi Pálsson er kominn til baka eftir meiðsli en hann er með 11,8 stig, 3,8 stoðsendingar og 3,5 fráköst að meðaltali í leik. Haukur var með 17,5 stig og 5,5 fráköst í síðustu tveimur leikjum og sýndi þá að hann er búinn að ná sér af meiðslunum sem voru að trufla hann í margar vikur þar á undan. Leikur liðanna fer fram Caisse d’Epargne Arena í Charleville-Mézières og hefst klukkan 19.00 að íslenskum tíma. Það verður hægt að fylgjast með leiknum með því að smella hér. Martin Hermannsson og Haukur Helgi Pálsson eru tveir af bestu körfuboltamönnum Íslands og eiga báðir mikið í því að Ísland er á leiðinni á Eurobasket í annað skiptið á tveimur árum. Þeir spila hlið við hlið með landsliðinu en í kvöld fá þeir tækifæri til að taka á hvorum öðrum.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira