Fótbolti

Sjáðu fyrsta þáttinn af Sumarmessunni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fyrsti þátturinn af Sumarmessunni var á dagskrá Stöðvar 2 Sport í gær.

Í Sumarmessunni er farið yfir leiki dagsins í Copa América, Suður-Ameríkukeppninni í fótbolta, en keppnin fagnar 100 ára afmæli sínu í ár.

Einnig verður farið yfir EM sem hefst á föstudaginn og að sjálfsögðu íslenska landsliðið sem verður á meðal þátttökuliða í Frakklandi.

Gestir Hjörvars Hafliðasonar í fyrsta þættinum voru þeir Hörður Snævar Jónsson, ritstjóri vefsíðunnar 433.is, og Ingólfur Sigurðsson, leikmaður Fram.

Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×