Körfubolti

Jakob setti niður fimm þrista í sigri Borås

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jakob skoraði 20 stig í leiknum í kvöld.
Jakob skoraði 20 stig í leiknum í kvöld. mynd/borås
Jakob Örn Sigurðarson átti góðan leik þegar Borås Basket bar sigurorð af Uppsala, 87-71, í lokaumferð sænsku úrvalsdeildarinnar í körfubolta í kvöld.

Jakob, sem er fyrirliði Borås, spilaði í tæpar 29 mínútur; skoraði 20 stig, tók tvö fráköst og gaf tvær stoðsendingar. Hann var næststigahæstur í liði Borås.

Jakob hitti úr tveimur af fjórum skotum sínum inni í teig og setti niður fimm þrista í átta tilraunum. Borås-liðið hitti vel fyrir utan þriggja stiga línuna í leiknum í kvöld, eða 47%.

Borås vann þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum á tímabilinu og endaði í 5. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×