Fótbolti

Liverpool-maðurinn fór á kostum í stórsigri Brasilíumanna | Sjáðu markaveisluna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Philippe Coutinho fagnar einu marka sinna.
Philippe Coutinho fagnar einu marka sinna. Vísir/Getty
Brasilíumenn eru komnir í gang í Ameríkukeppninni því þeir sýndu sínar allra bestu hliðar í nótt eftir að hafa gert markalaus jafntefli í fyrsta leiknum. Brasilía vann þá 7-1 sigur á Haíti en Ekvador og Perú gerðu 2-2 jafntefli í hinum leik riðilsins.

Liverpool-maðurinn Philippe Coutinho skoraði þrennu í þessum 7-1 sigri Brasilíu á Haíti en Haítar eru þar með úr leik þrátt fyrir að ein umferð sé eftir af riðlakeppninni.

Philippe Coutinho gaf tóninn strax í byrjun, Haítar voru heppnir að fá ekki rautt spjald fyrir brot á honum og þá átti hann líka gott skot á upphafsmínútunum.

Philippe Coutinho kom Brasilíu í 2-0 með mörkum á 14. og 29. mínútu, það fyrra með glæsilegu skoti eftir að hafa komið inn af kantinum og það seinna af stuttu færi í tómt mark eftir undirbúning þeirra Dani Alves og Jonas.

Renato Augusto kom Brasilíumönnum síðan í 3-0 fyrir hálfleik eftir sendingu frá Dani Alves en Renato Augusto átti síðan eftir að bæta við öðru marki rétt fyrir leikslok.

Gabriel og Lucas Lima skoruðu næstu tvö mörk en það seinna koma eftir aðra stoðsendingu frá Dani Alves. Þá var staðan orðin 5-0 en Haíti minnkaði þá muninn áður en fyrrnefndir Renato Augusto (86. mínúta) og Philippe Coutinho (í uppbótartíma) bættu við síðustu tveimur mörkunum.

Philippe Coutinho var aðeins búinn að skora eitt landsliðsmark fyrir leikinn í nótt en þetta var hans sextándi landsleikur. Það er líklegt að áhugi annarra liða aukist enn meira eftir þessa frammistöðu og stuðningsmenn Liverpool geta jafnvel farið að búa sig undir það að hann yfirgefi Anfield í sumar.

Draumabyrjun Perúmanna dugði ekki nema til að fá eitt stig þegar Ekvador og Perú gerðu 2-2 jafntefli í hinum leik B-riðilsins.

Perú, sem vann Haíti í fyrsta leik, var komið í 2-0 eftir aðeins þrettán mínútur með mörkum Christian Cueva og Edison Flores. Enner Valencia, leikmaður West Ham,  minnkaði muninn á 39. mínútu og Miller Bolanos jafnaði metin í byrjun seinni hálfleiks.

Brasilía og Perú eru í tveimur efstu sætunum með fjögur stig en Ekvador er í 3. sæti með 2 stig. Haíti er stigalaust á botnunum og er fyrsta liðið í keppninni sem ekki á lengur möguleika á því að komast í átta liða úrslitin. Brasilía og Perú mætast í lokaumferðinni en Ekvador ætti að eiga sigur vísan á móti Haíti.

Önnur umferðin í C-riðlinum á þessu hundrað ára afmælismóti Ameríkukeppninnar fer fram í kvöld og verða leikirnir sýndir beint á Stöð 2 Sport. Þá mætast Úrúgvæ og Venesúela klukkan 23.30 og lið Mexíkó og Jamaíku klukkan 2.00. Mexíkó og Venesúela unnu leiki sína í fyrstu umferðinni.

Mörkin úr leik Brasilíu og Haíti Mörkin úr leik Ekvador og Perú



Fleiri fréttir

Sjá meira


×