Fleiri fréttir

Héraðsdómurum verði fjölgað um 10

Dómstólaráð telur að fjölga verði tímabundið enn frekar í hópi dómara og nauðsynlegt geti verið að auka fjölda þeirra um allt að 10 til viðbótar við þá 43 sem nú eru skipaðir. Þetta kemur fram í greinargerð með frumvarpi sem Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra lagði fram á Alþingi í dag. Ástæðan er að fyrirsjáanlegt er að dómsmálum muni fjölga gríðarlega á næstunni vegna bankahrunsins.

Geir vill Andra sem verjanda

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, telur að óhæfilegur dráttur hafi orðið á því að sér sé skipaður verjandi í samræmi við þá ákvörðun Alþingis að höfða mál gegn honum. Hann hafi verulega hagsmuni af því að lögmaður sinn fái formlega stöðu verjanda og því vill Geir að Andri Árnason, hæstaréttarlögmaður, verði skipaður verjandi sinn.

Samfylkingin í Kópavogi biðst afsökunar

Félagsmönnum í Samfylkingarfélaginu í Kópavogi var í dag sendur ítrekunarbréf frá Arion banka vegna greiðslu félagsgjalda fyrir árið 2010-2011. „Þegar kreppir að og hagræða þarf í heimilisbókhaldi þá kemur glaðningur inn um bréfalúgu þar sem hótað er lögheimtuaðgerðum vegna vangoldinna félagsgjalda,“ sagði ósáttur félagi í Samfylkingunni í tölvubréfi til fréttastofu fyrr í dag.

Mikilvægur dómur fyrir þróun samkeppnismála

„Þessi dómur Hæstaréttar skiptir miklu fyrir þróun samkeppnismála hér á landi. Með honum er komið mikilvægt fordæmi sem fyrirtækjum á samkeppnismörkuðum ber að horfa til,“ segir Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins.

Mál verði höfðað gegn Bretum

Fjórtán þingmenn þriggja flokka hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um málshöfðun á hendur breska ríkinu fyrir alþjóðlegum dómstól fyrir að beita hryðjuverkalögum gegn íslenska ríkinu og íslenskum fyrirtækjum í október 2008. Þingmennirnir vilja að gerð verði krafa um skaðabætur.

Þrjár konur skipaðar ráðuneytisstjórar

Ragnhildur Hjaltadóttir verður ráðuneytisstjóri nýs innanríkisráðuneytis sem tekur formlega til starfa um næstu áramót við sameiningu dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis.

Hættir í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna

Marínó G. Njálsson, stjórnarmaður i Hagsmunasamtökum heimilanna, hefur látið af því embætti. Hann segir í tilkynningu til fjölmiðla að ástæðan sé endurtekin hnýsni fjölmiðla í sín mál. Málið á rætur að rekja til umfjöllunar Fréttatímans um skuldamál Marínós, eftir því sem fram kemur á bloggvef hans.

Lögreglumaður dæmdur í Hæstarétti

Lögreglumaðurinn Garðar Helgi Magnússon var dæmdur sekur í Hæstarétti í dag og var því sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur snúið við.

Reykjavík biðst afsökunar

„Borgarráð biður alla þá einstaklinga sem vistaðir voru á stofnunum á vegum barnaverndaryfirvalda í Reykjavík á árum áður og urðu fyrir ofbeldi eða illri meðferð afsökunar.“ Svo hefst bókun sem samþykkt var á fundi borgarráðs í morgun.

Fæstir vilja Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn

MMR kannaði afstöðu almennings til þess hvaða stjórnmálaflokk, sem nú á sitjandi þingmenn á Alþingi, það vildi síst hafa í ríkisstjórn en flestir vilja síst sjá Sjálftstæðisflokkinn. Næstir á eftir koma Vinstri grænir.

Nýsköpunarmessa haldin í HÍ á morgun

Nýsköpunarmessa Háskóla Íslands verður á morgun. Á Nýsköpunarmessu verða Hagnýtingarverðlaun HÍ afhent og sprotafyrirtæki verða kynnt sem sprottið hafa úr frjósömum jarðvegi Háskólans. Markmið með

Toshiki um Arnþrúði: Hún var virkilega móðgandi

Toshiki Toma, presti innflytjenda, misbauð hvernig Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, talaði við erlenda konu sem hringdi inn í þátt hennar á degi íslenskrar tungu en gat ekki tjáð sig á íslensku. „Framkoma útvarpkonunar gagnvart útlensku stúlkunni var ekki falleg. Hún var virkilega móðgandi," segir Toshiki í aðsendri grein sem birt var hér á Vísi í dag.

Anna Lilja Gunnarsdóttir skipuð ráðuneytisstjóri

Guðbjartur Hannesson, félags- og tryggingamálaráðherra og heilbrigðisráðherra, hefur ákveðið að skipa Önnu Lilju Gunnarsdóttur í embætti ráðuneytisstjóra nýs velferðarráðuneytis sem verður til við sameiningu félags- og tryggingamálaráðuneytis og heilbrigðisráðuneytis 1. janúar 2011.

Forsætisráðherra fundar með leiðtogum NATO ríkja

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hélt til Lissabon í Portúgal í dag til þess að taka þátt í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins sem er haldinn þar. Fundurinn hefst á morgun og stendur fram á laugardag.

Fjármálaráðherra mælir fyrir níu þingmálum

Það er í nógu að snúast hjá Steingrími J. Sigfússyni fjármálaráðherra á Alþingi í dag. Af fimmtán málum sem eru á dagskrá þingsins mun fjármálaráðherrann mæla fyrir níu þeirra. Eitt af þeim frumvörpum sem ráðherra mælir fyrir er heimild skattayfirvalda til að kyrrsetja eigur ef grunur leikur á brotum á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, lögum um virðisaukaskatt og lögum um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur.

Vörnuðu eiganda að vera viðstaddur eigið uppboð

„Þetta var ekki gott,“ segir fulltrúi eiganda húsnæðis sem var boðið upp í morgun í Hafnarfirði en Heimavarnarliðið meinaði fulltrúa eiganda hússins að vera viðstaddur uppboðið.

Lífstíðarfangelsi fyrir að bana 15 mánaða gömlu barni

Gary Alcock, 28 ára gamall breskur karlmaður, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt fimmtán mánaða gamla dóttur kærustu sinnar. Árásin er rakin til þess að grátur barnsins truflaði Alcock á meðan að hann var að leika sér í Xbox leikjatölvu.

Leggur til 200.000 tonna loðnukvóta í vetur

„Hafrannsóknastofnunin leggur því til að heildaraflamark loðnu á vertíðinni 2010/2011 verði samtals 200 þúsund tonn. Jafnframt leggur stofnunin til að ekki verði gerðar breytingar á núgildandi reglum um takmörkun á notkun flotvörpu við veiðarnar," segir í tilkynningu frá stofnuninni sem send var út fyrr í dag.

Síðustu skiladagar á jólapósti

Síðasti öruggi skiladagur til að póstleggja jólapakka til landa utan Evrópu er mánudagurinn 6.desember og jólakort til landa utan Evrópu er föstudagurinn 10.desember. Pósturinn minnir á síðustu öruggu skiladaga fyrir sendingar jólakorta og jólapakka í desember, innanlands og utan.

Palin pælir í forsetaframboði

Sarah Palin, fyrrverandi varaforsetaefni Repúklikana í Bandaríkjunum sagði í viðtali við ABC stöðina í gær að hún gæti sigrað Barack Obama í forsetakosningunum 2012.

Sérstakur saksóknari: Húsleitir bera árangur

„Heilt yfir þá er ekki mikið sem hefur upp á vantað í húsleitunum," sagði Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, í morgunútvarpi Rásar 2 þar sem hann var spurður hvort húsleitir árum eftir ætluð brot skiluðu árangri.

Gunnar Rúnar ákærður í dag

Ákæra gegn Gunnari Rúnari Sigurþórssyni, sem grunaður er um morðið á Hannesi Þór Helgasyni, verður gefin út í dag, samkvæmt upplýsingum frá embætti Ríkissaksóknara.

Fáum 6.400 tonna þorskkvóta í Barentshafi

Ísland mun fá tæplega 6.400 tonna þorskkvóta í Barentshafi á næsta ári. Þetta er á grundvelli svokallaðs Smugusamnings sem gerður var milli Íslands, Rússlands og Noregs árið 1999.

Fráskildir kvenkyns öryrkjar hafa það verst

Sá hópur öryrkja sem á erfiðast með að standa skil á venjulegum útgjöldum eru fráskildar konur. Þar á eftir kona frjáskildir karlkyns öryrkjar. Samkvæmt skýrslu Öryrkjabandalagsins um Lífshagi og kjör öryrkja eiga 70 prósent fráskilinna kvenna í greiðsluerfiðleikum og 57 prósent fráskilinna karla.

Helga Jónsdóttir skipuð ráðuneytisstjóri

Helga Jónsdóttir lögfræðingur hefur verið skipuð ráðuneytisstjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu frá 1. desember næstkomandi. Hún hefur haft með höndum stjórnunarstörf á vegum opinberra og alþjóðlegra aðila í 21 ár.

Ólafi enn haldið sofandi

Ólafi Þórðarsyni tónlistarmanni er enn haldið sofandi á gjörgæsludeild Landspítalans. Hann er alvarlega slasaður eftir árás sem hann varð fyrir á heimili sínu á sunnudag. Sonur Ólafs var úrskurðaður í gæsluvarðhald og hefur hann játað að hafa ráðist á föður sinn.

Stálu skjávörpum og skemmdu tíu tölvur

Fjórum tölvum og minnsta kosti tveimur skjávörpum var stolið úr Ísaksskóla í nótt. Þjófar brutu sér leið inn um bakinngang að íþróttasal skólans.

Náttúruperlur að tapa gildi sínu vegna álags

Margar af helstu náttúruperlum Íslands eiga á hættu að tapa gildi sínu, verði ekki brugðist við sívaxandi umferð ferðamanna. Níu svæði eru undir svo miklu álagi að bregðast þarf við tafarlaust.

Sjö ára stelpur vildu fá lánaða hunda til að „bíta krakka“

Eigandi tveggja Schafer-hunda hefur áhyggjur af því að fólk sé að lána börnum hundana sína og leyfa þeim að fara einum með þá út í göngutúr. Hún segist nýverið hafa fengið beiðni frá ókunnugum sjö ára stelpum sem vildu fara út með hundana hennar en þegar hún spurðist nánar fyrir ætluðu stelpurnar að siga hundunum á önnur börn.

Julian Assange eftirlýstur á ný í Svíþjóð

Handtökuskipun hefur á ný verið gefin út á hendur Julian Assange, stofnanda Wikileaks, í Svíþjóð. Saksóknari krafðist þess fyrst í ágúst að Assange yrði handtekinn en sú skipun var afturkölluð daginn eftir. Nú segir Marianne Ny, saksóknari, við sænska ríkisútvarpið að handtökuskipunin hafi verið endurútgefin. Assange er sakaður um nauðgun í Enköping og kynferðisbrot í þremur tilvikum í Stokkhólmi.

Dagblöðum fækkað úr fimm í tvö

Dagblöðum á Íslandi hefur fækkað úr fimm í tvö frá árinu 1995 og hafa ekki verið færri síðan á öðrum áratug síðustu aldar. Í gögnum frá Hagstofunni kemur fram að vikublöðum hefur líka nokkuð fækkað á síðustu árum, eða úr 25 þegar best hefur látið í 21 í fyrra.

Sýknaður af 285 ákæruatriðum - eitt leiddi til sakfellingar

Fyrsti Guantanamo fanginn sem dreginn hefur verið fyrir rétt á bandarískri grundu var sýknaður í meginatriðum í gær. Tanzaníumaðurinn Ahmend Ghailani, 36 ára, var sýknaður af 285 ákæruatriðum en fundinn sekur í einu, um að leggja á ráðin um sprengjuárásir á bandarískar eignir. Ghailani var ákærður fyrir aðild að árásunum á sendiráð bandaríkjanna í Kenýa og Tanzaníu árið 1998 þar sem 224 létust.

Fá bara ýsu í netin en eiga ekki kvóta

Smábátasjómenn frá Hólmavík og Drangsnesi við Húnaflóa geta ekki lengur róið til þorskveiða, þar sem þeir fá nánast ekkert nema ýsu, en þeir eiga ekki ýsukvóta og ómögulegt er að fá hann leigðan.

Fuglaflensan lætur á sér kræla á ný

Fuglaflensan illræmda virðist vera farin að láta á sér kræla á ný en kona í Hong Kong liggur nú þungt haldin á sjúkrahúsi í borginni. Þar hafa fuglaflensutilfelli ekki komið upp frá árinu 2003.

Stálu flatskjá í Þverholti

Brotist var inn í fyrirtæki við Þverholt í Reykjavík í nótt og þaðan stolið stórum flatskjá og einhverju fleiru. Þjófavarnakerfi fór í gang en þjófarnir voru á bak og burt þegar lögregla kom á vettvang skömmu síðar. Þeir virðast hafa verið eldsnöggir á vettvangi og að öllum líkindum komist undan á bíl.

Herjólfur snarsnérist í hafnarmynninu

Rekstrarstjóri Herjólfs hjá Eimskip, ásamt sérfræðingum, ætlar í dag að fara yfir það með skipstjóra ferjunnar, hvað olli því að skipið snar snérist og sló flötu fyrir þegar alda kom undir það í hafnarmynninu að Landeyjahöfn í gærmorgun.

Ráðuneytið vill dýrara húsnæði

Heilbrigðisráðuneytið vill að ný sameinuð stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættisins verði til húsa í gömlu Heilsuverndarstöðinni á Barónsstíg.

Tekinn með lítra af amfetamínvökva

Tæplega fertugur karlmaður er nú fyrir héraðsdómi, ákærður fyrir að hafa reynt að smygla til landsins rúmlega einum lítra af amfetamínvökva. Úr því magni hefði mátt framleiða rúmlega átta kíló af amfetamíni, sem ætluð voru til söludreifingar í ágóðaskyni hér.

Gagnrýna hækkun eldsneytisverðs og vilja rök

Olíufélögin hækka eldsneytisverð á meðan heimsmarkaðsverð á olíu lækkar. Lítrinn kostar nú um 200 krónur hvar sem er á landinu. Neytendasamtökin og FÍB gagnrýna hækkanir og vilja sjá rökin fyrir þeim.

Presturinn hitti eldri borgarana

Auka á samstarf á milli kirkju og eldri borgara í Stykkishólmi. Samkvæmt tillögu þjónustuhóps aldraðra á íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins að koma á þessu aukna samstarfi sem sagt er geta verið af margvíslegum toga.

Sjá næstu 50 fréttir