Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Afmælisbörn hætta við túr Rokkararnir í Brain Police, sem halda upp á tíu ára afmælið sitt á næstunni, hafa hætt við þriggja vikna tónleikaferð um Evrópu sem átti að standa yfir í nóvember og desember. Ástæðan er hrap íslensku krónunnar. 20.11.2008 04:00
Tveggja milljarða plata Axl Rose kemur loks út Á mánudaginn kemur nýja platan með Guns N‘ Roses, eða öllu heldur Axl Rose, loksins út. Platan Chinese Democracy er margboðuð, en nú virðist ekkert geta stöðvað útgáfu hennar nema ef til vill heimsendir. 20.11.2008 03:45
Jólalögin byrja að óma á Létt Bylgjunni Jólalögin byrja að óma á morgun á Létt Bylgjunni. Fyrst um sinn verða jólalögin leikin í bland við þá tónlist sem stöðin spilar alla jafna en þegar nær dregur jólum verða eingöngu leikin jólalög og ný íslensk tónlist. 19.11.2008 19:37
Slær met vestanhafs Kvikmyndin Quantum of Solace hefur slegið met í miðasölunni vestanhafs og er orðin sú Bond-mynd sem hefur náð í mestar tekjur allra eftir frumsýningarhelgi sína. 19.11.2008 06:30
Hafdís Huld í breyttri útgáfu Bretinn Simon Latham hefur endurhljóðblandað lag Hafdísar Huldar, Tomoko, og verður það gefið út á Tónlist.is næstkomandi mánudag. Lagið verður gefið út erlendis í byrjun næsta árs. 19.11.2008 06:00
Sjóðheitt krepputal - myndband „Merkilegar staðreyndir komu fram í þættinum og málstaðurinn er góður, snertir þig og mig," svarar Ásdís Olsen þáttastjórnandi á sjónvarpsstöðinni ÍNN aðspurð út í heitar umræður í síðasta þætti. 18.11.2008 16:27
Bandarískur veðurfréttamaður heldur vart vatni yfir Íslandi Tveir síðustu þættir The Today Show, vinsælasta morgunsjónvarpsþáttar Bandaríkanna, voru sendir út frá Íslandi. Einn frægasti veðurfréttamaður Bandaríkjanna, Al Roker, er á landinu til að fjalla um áhrif loftslagsbreytinga, og sendi í gær út frá Gullfossi, en í morgun var þátturinn sendur út frá Bláa lóninu. 18.11.2008 15:27
Ásdís hækkar í verði Max blaðið sem Ásdís Rán sat fyrir í á dögunum sló öll sölumet í Búlgaríu. Þessar ánægjulegu fréttir færðu útgefendur blaðsins Ásdísi í gær. Ásdís bloggar um málið í dag og segir þetta afar jákvæða þróun mála. "Þetta eru mjög góðar fréttir fyrir mig því nú hækkar verðið á mér töluvert fyrir næstu tökur sem ég er búin að plana fyrir næsta ár," segir Ásdís, en fjöldi blaða hafa sýnt því áhuga að fá hana á síður sínar. 18.11.2008 14:53
Nýtt bréf frá Bjarna Harðarsyni Eftir undangengna daga má telja næsta víst að bréf frá Bjarna Harðarsyni í ritstjórnarpósthólfum séu opnuð fljótt og örugglega. Bjarni hefur nú snúið aftur til fyrri starfa sem bóksali, og farinn að senda frá sér tilkynningar sem slíkur. 18.11.2008 13:26
Spaugstofan leitar enn að Árna Mathiesen Spaugstofumenn gerðu mikla leit að Árna Mathiesen fjármálaráðherra síðasta laugardag, en hafa enn ekki fundið hann. Sölvi Tryggvason er fundvísari en Spaugstofumenn, því Árni sat fyrir svörum hjá honum í Íslandi í dag í gær. 18.11.2008 11:23
Íslendingar kjósa íslenska tónlist Af 10 vinsælustu lögum Bylgjunnar, valin af hlustendum, eru 8 þeirra íslensk. Vísir spurði Jóhann Örn Ólafsson kynningarstjóra útvarpsstöðvarinnar hvað veldur? „Þetta hefur gerst áður og gerist stundum um þetta leiti þegar mikið af íslenskri tónlist kemur út. Það er mikið af góðri íslenskri tónlist sem er að koma út um þessar mundir og þá tónlist á heimsmælikvarða eins og Emilíana, Lay Low og allir hinir," svarar Jóhann. 18.11.2008 09:54
Þorgerður Katrín hannaði sér kjól úr gardínuefni - myndband Svavar Halldórsson var heppinn að eiga tvenn ný jakkaföt og tíu skyrtur, Þorgerður Katrín var í kjól sem hún hannaði sjálf en sumir segja að líti út eins og gardínur, og Gísli Einarsson var eins og sauðkindin að eigin sögn. 18.11.2008 09:48
Ekki er allt magurt fagurt Mögru módelstúlkurnar fæla kaupendur frá þeim fatnaði sem þær auglýsa ef marka má nýja ástralska rannsókn. 18.11.2008 08:40
Þingmenn fengu Gleðigjafann Fjölmargir einstaklingar og hópar hafa undanfarið tekið til sinna ráða til að kljást við kreppuna. Allt frá því að gefa Færeyingum jólastjörnur, efna til borgarafunda og upp í að skipuleggja heila stórtónleika. 17.11.2008 16:02
Ráðist að Lindsay Lohan í París - myndband Leikkonan Lindsay Lohan og kærastan hennar Samantha Ronson voru staddar í París um helgina. Þegar kærusturnar mættu á veitingahúsið Cafe de Paris í gærkvöldi réðst óvænt að þeim meðlimur dýraverndunarsamstakanna PETA og gerði tilraun til að sturta hveiti yfir Lindsay. 17.11.2008 10:14
Justin Timberlake í sundbol - myndband Á meðfylgjandi má sjá Justin Timberlake ásamt fleiri dönsurum klæddan í sundbol og kvenmannsskó með söngkonunni Beyoncé Knowles gera tilraun til að dansa við nýja lagið hennar ,,Single ladies" eins og hún gerir í tónlistarmyndbandi við lagið. 17.11.2008 09:19
Fjórar íslenskar kvikmyndir klárar fyrir næsta ár Fjórar íslenskar kvikmyndir eru að verða klárar til frumsýningar og verða sýndar árið 2009. Þrjár af þeim eru að öllu eða einhverju leyti leiknar á ensku. Þær eru R.W.W.M eftir Júlíus Kemp, The Good Heart í leikstjórn Dags Kára og Inhale sem Baltasar Kormákur leikstýrir. Brim er eina myndin af þessum fjórum sem er alfarið á íslensku en leikstjóri hennar er Árni Ólafur Ásgeirsson. 17.11.2008 07:00
Fullt hús hjá Stúdentaleikhúsinu „Um fjörutíu manns sóttu um að komast inn í Stúdentaleikhúsið í ár,“ segir Halldóra Rut Bjarnadóttir, einn af stjórnendum leikhússins, sem sýnir nú leikverkið Scarta undir stjórn Víkings Kristjánssonar. „Víkingur lagði fram hugmynd að handriti, valdi þá sem honum fannst passa í hlutverkin og í kjölfarið hófst átta vikna spunaferli þar sem verkið var sniðið í samvinnu við leikara og listræna stjórnendur,“ útskýrir Halldóra, en Scarta var frumsýnt fyrir rúmri viku og hlaut góðar viðtökur. 17.11.2008 06:00
Zeppelin-dúett breytir um nafn Led Zeppelin-goðsagnirnar Jimmy Page og John Paul Jones hafa ákveðið að halda í tónleikaferð um heiminn ásamt syni trommarans Johns Bonham, Jason. Robert Plant verður hins vegar víðs fjarri og því stendur ekki til að notast við nafnið Led Zeppelin. „Án Plants kemur ekki til greina að notast við nafnið. Zeppelin er ekki til án hans,“ segir talsmaður hinnar nýskipuðu sveitar. Leit stendur nú yfir að eftirmanni hans. 17.11.2008 03:00
Battle of the Bands að hefjast Undankeppni alþjóðlegu hljómsveitakeppninnar Global Battle of the Bands fer fram í Hafnarfirði 18. til 22. nóvember. Sigursveitin tryggir sér þátttökurétt í úrslitakeppninni sem verður haldin á tónleikastaðnum Scala í hjarta Lundúna, Englandi 14. og 15. desember. 17.11.2008 03:00
Pétur Jóhann er sjónvarpsmaður ársins Pétur Jóhann Sigfússon var í kvöld valinn Sjónvarpsmaður ársins á Edduverðlaununum. Kosið var í gegnum síma á meðan á útsendingunni stóð en áður höfðu fimm sjónvarpsmenn verið sigtaðir út í netkosningu á Vísi og með skoðannakönnum Capacent Gallup. Pétur Jóhann sigraði með yfirburðum og vegur þar mest væntanlega frammistaða hans í hlutverki Ólafs Ragnars í Dagvaktinni. 16.11.2008 21:09
Dagvaktin fær Edduna Dagvaktin, í leikstjórn Ragnars Bragasonar fékk Edduna í kvöld í flokknum Leikið sjónvarpsefni ársins. Dagvaktin hefur slegið í gegn hér á landi og þykir gefa Næturvaktinni lítið sem ekkert eftir. Það var leikstjórinn Ragnar sem tók á móti verðlaununum í kvöld en á meðal leikara má nefna Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson og Pétur Jóhann Sigfússon. 16.11.2008 20:24
Áhorfendaverðlaun Eddunnar Edduverðlaunin eru í kvöld og þar verða Vinsælasti sjónvarpsmaðurinn að mati áhorfenda valinn í símakosningu. Fimm eru tilnefndir en þeir voru valdir með netkosningu á Vísi og með skoðannakönnun Capacent Gallup. Fimm vinsælustu sjónvarpsmennirnir í ár eru: 16.11.2008 11:09
Sigurður Björn Blöndal: Í aðalhlutverki í athyglisverðri bók Góður forstjóri á vel við „Hugmyndin kviknaði á Gljúfrasteini og vatt upp á sig. Þar var verið að borða taílenskan mat – „take away“. Rithöfundur, myndlistarmaður og gamall poppari. Við töluðum við þá Forlagsfeðga sem kveiktu á þessu. Og svo var þetta unnið mjög hratt,“ segir Sigurður Björn Blöndal sérfræðingur. 16.11.2008 08:00
Steed Lord í kvikmyndahúsi Stalíns Hljómsveit Svölu Björgvins og Einars Egilssonar, Steed Lord, kom fram á skemmtistaðnum Gradus í Moskvu í gærkvöldi. Staðurinn var áður einkakvikmyndahús Jósefs Stalín, einræðisherra Sovétríkjanna, en er nú einn vinsælasti skemmtistaður höfuðborgarinnar meðal hinna nýríku ólígarka. Ásamt Steed Lord steig Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi í Mínus, á stokk með sveitinni og tók með henni tvö eða þrjú lög. 16.11.2008 04:00
Amy hittir eiginmanninn loksins á mánudaginn Söngspíran Amy Winehouse fær loksins að hitta sinn heittelskaða Blake Fielder-Civil í fyrsta sinn í langan tíma á mánudaginn. Eiginmaðurinn, sem hefur glímt við fíkniefnin ekki síður en spúsan, fær að taka á móti gestum á meðferðarstofnuninni sem hann dvelur nú á en honum var sleppt úr fangelsi á dögunum. 15.11.2008 19:25
1500 miðar eftir á tónleikana í Laugardalshöll 1500 hundruð miðar eru enn í boði á tónleika sem haldnir verða í Laugardalshöll klukkan átta í kvöld. Ókeypis er á tónleikana en fjöldi fólks hafði safnast saman fyrir utan höllina á hádegi í dag þegar byrjað var að úthluta miðum. 5500 manns komast fyrir í Laugardalshöllinni en á meðal flytjenda í kvöld eru Bubbi Morthens, Ný dönsk, Ham og fleiri. 15.11.2008 15:06
Húsfyllir á styrktartónleikum fyrir BUGL - MYNDIR Húsfyllir var í Grafarvogskirkju í fyrrakvöld þegar Lionsklúbburinn Fjörgyn stóð fyrir tónleikum til styrktar BUGL, Barna og unglingageðdeild Landspítalans, í sjötta sinn. 15.11.2008 10:59
Vífill íhugar að hringja í Obama „Þetta er sko sama númer. Þetta er bara Hvíta húsið," segir Vífill Atlason, þegar Vísir spyr hann að því hvort að hann sé búinn að redda sér símanúmerinu hjá Obama, verðandi Bandaríkjaforseta. Vífill segir þó að vel komi til greina að reyna að gúggla gemsann hjá Obama og slá á þráðinn. 14.11.2008 22:21
Ásdís kosin fallegasta kona Búlgaríu Fjölmiðlar í Búlgaríu hafa kosið Ásdísi rán fallegustu konu landsins. Þessu greinir hún frá á bloggi sínu í dag. Ásdís hefur slegið rækilega í gegn í Búlgaríu frá því hún flutti þangað í haust, eins og sést berlega á hinum titlinum sem hún hlaut. Það er „vinsælasta og mest umtalaða kona Búlgaríu" eins og hún orðar það á blogginu sínu. 14.11.2008 15:54
Pissaðu á Gordon Brown Landsmönnum gefst nú kost á því að bæði ganga yfir og pissa á Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands. Vefverslunin Pix-1 hefur hafið sölu á áróðursmottum með myndum af þessum nýja erkióvini Íslands. 14.11.2008 13:45
Opnun á heimasíðu fagnað á Tunglinu Ný heimasíða Flex Music fer í loftið í kvöld og verður því fagnað á Tunglinu með plötusnúðunum Ghozt og Brunhein. 14.11.2008 13:17
Jólakúlur, brjóstsykur og hekl á örnámskeiðum Heimilisiðnaðarfélagsins Heimilisiðnaðarfélag Íslands stendur fyrir nokkrum „örnámskeiðum" á morgun, sem öl tengjast jólunum á einn eða annan hátt. Meðal þess sem hægt verður að læra er að þæfa jólajúlur, búa til brjóstsykur og hekla jólaseríur. 14.11.2008 12:09
Ísland til sölu á Netinu Tveir framtakssamir hugsjónamenn, þeir Friðgeir Torfi Ásgeirsson og Hafliði Sigfússon, hafa ákveðið að selja Ísland á Netinu og nota ágóðann af sölunni til að losa landið úr skuldafeninu. 14.11.2008 11:44
Íslenskur Bond í kreppuútgáfu Stikla fyrir nýja íslenska kreppuútgáfu Bond fer nú eins og eldur í sinu um netið. Myndin nefnist „The Fourth Cod War" og í takt við tíðarandann er hinn rammenski Bond ekkert góðmenni. Rússar eru í því hlutverki. 14.11.2008 10:50
Karlmaðurinn á von á öðru barni Thomas Beatie, sem fæddist sem kona en lifir sem karlmaður eftir að hafa undirgengist kynskiptaaðgerð, á von á öðru barni. Thomas eignaðist stúlkubarn á spítala í Oregon í júlí á þessu ári sem hlaut nafnið Susan Juliette. Eftir að Beatie ákvað að verða karlmaður lét hann fjarlægja brjóst sín, en hélt þó æxlunarfærunum af því hann vildi einn daginn eignast börn. 14.11.2008 10:25
Þjóðverjar veita hjálparhönd Þýska fyrirtækið A Number of Small Things, sem selur plötur á heimasíðunni anost.net, ætlar að koma Íslendingum til bjargar með því að selja í tonnatali plötur frá íslenska útgáfufyrirtækinu Kimi Records. 14.11.2008 09:00
Sprengjuhöllin fagnaði í Óperunni Sprengjuhöllin hélt útgáfutónleika í Íslensku óperunni á þriðjudagskvöld til að fagna útkomu sinnar annarrar plötu, Bestu kveðjur. Hljómsveitin spilaði lög af nýju plötunni í bland við eldra efni við mjög góðar undirtektir. Kynnir kvöldsins var Árni Vilhjálmsson, söngvari í FM Belfast, og sá hljómsveitin Motion Boys um upphitun. 14.11.2008 07:00
Leynivopnin í eldhúsinu Guðrún Möller gefur lítið fyrir afrek sín í eldhúsinu en segist klóra sig fram úr uppskriftum fái hún undirbúningstíma. Góð áhöld segir hún nauðsynleg við eldamennskuna. 14.11.2008 06:00
Jóhann fær góða dóma Tónskáldið Jóhann Jóhannsson fær 6,7 í einkunn af tíu mögulegum á bandarísku tónlistarsíðunni Pitchforkmedia.com fyrir sína nýjustu plötu, Fordlândia. 14.11.2008 06:00
Kanye kennir sér um dauða móðurinnar Rapparinn Kanye West kennir sér um dauða móður sinnar fyrir ári síðan. Móðirin, Donda West, lést vegna eftirkasta fegrunaraðgerðar. 13.11.2008 16:56
26 tíma dansmaraþon á Sauðárkróki- Geirmundur mætir með nikkuna 10.bekkingar í Árskóla á Sauðárkróki hófu í morgun 26 tíma dansmaraþon í kjallara félagsmiðstöðvar sinnar. Ætlunin er að dansa til hádegis á morgun og verða samkvæmisdansarnir í hávegum hafðir. Reynir Snær Magnússon nemandi í 10.bekk segist hafa safnað 70 þúsund krónum, en verið er að afla fjár vegna fyrirhugaðs ferðalags til Danmerkur. 13.11.2008 14:50
Blur gæti komið saman aftur Damon Albarn, forsvarsmaður britpop sveitarinnar Blur segir það raunhæfan möguleika að hún komi saman aftur eftir að hann og gítarleikarinn Graham Coxon löppuðu upp á vinskapinn. 13.11.2008 14:37
Gefa klósettpappír til þess að skeina ráðamönnum „Þar sem ráðamenn þjóðarinnar hafa gert svo laglega upp á bak vill X-ið 977 hvetja hlustendur sína til þess að mæta í mótmælin á laugardaginn með skeinipappír og skilja hann eftir fyrir utan alþingisdyrnar. Ráðamenn þurfa að skeina sig og þeir virðast algjörlega ófærir um það eins og allt annað sem þeir taka sér fyrir hendur. 13.11.2008 13:19
Vantar styrki fyrir tónleikunum í Höllinni Reykjavíkurborg hefur ákveðið að styrkja ekki fyrirhugaða tónleika í Laugardalshöll á Laugardaginn kemur. Lára Ómarsdóttir, einn af aðstandendum tónleikanna, sem eru undir yfirskriftinni „áfram með lífið“ og er ætlað að þjappa þjóðinni saman á erfiðum tímum, segist vonsvikin með ákvörðun borgarinnar. Óskar Bergsson, formaður Borgarráðs, bendir á að leiga vegna hallarinnar hafi verið felld niður og að tónleikahaldarar hljóti að geta leitað á önnur mið með frekari styrki. 13.11.2008 11:23