Fleiri fréttir

Fetaði í fótspor stóru systur

Sumarstúlka Vestmannaeyja var valin í Höllinni í Eyjum síðasta laugardagskvöld og var sigurvegari keppninnar hin átján ára gamla Elín Sólborg Eyjólfsdóttir. Þetta er í tuttugasta og fjórða skipti sem keppnin er haldin, en hún fer fram hvert sumar.

Kesha hirðir föt af götunni

Hin vilta Kesha segist nota tónlistina til að hefna sín á fólki sem hefur gert eitthvað á hennar hlut.

Húðflúraði eyrað á sér

Söngkonan Miley Cyrus, 17 ára, fékk sér nýtt húðflúr, orðið „Love", sem hún lét setja á eyrað á sér á dögunum. „Það er svo mikil neikvæðni í heiminum. Það eina sem ég vil heyra er kærleikur," sagði Miley. „Fólk segir stöðugt við mig að það heyrði einhvern segja eitthvað neikvætt um mig en ég kæri mig ekki um að heyra það því það skiptir mig alls engu máli." „Kærleikurinn er það sem fær heiminn til að snúast og á hann eigum við að einblína."

Ný plata frá Radiohead í ár

Hljómsveitin Radiohead er á lokasprettinum við vinnu á nýrri plötu. Hljómsveitin vonast til að geta gefið hana út í enda árs, samkvæmt viðtali við gítarleikarann Ed O‘Brien.

Gott fyrir kynlífið - myndband

„Já ég myndi halda það..." svaraði Hrefna Rósa Sætran spurð hvort japanska sojabaunamaukið sem hún notar mikið í réttina á veitingastaðnum hennar Fiskmarkadurinn.is. sé gott fyrir kynlífið til dæmis.

Þessi getur sko sungið - myndband

„Við tökum fullt af Zeppelin lögum sem við höfum aldrei spilað áður," sagði Pétur Örn Guðmundsson söngvari í hljómsveitinni Dúndurfréttir sem heldur tónleika til heiðurs Led Zeppelin í Borgarleikhúsinu 22. júní næstkomandi. Sjá nánar midi.is. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtal við Pétur og Einar.

Íslendingar hjálpuðu keppendum í Amazing Race

„Þetta var magnað, við vorum bara að skoða knattspyrnuleikvanginn frá HM 2002 þegar við tökum allt í einu eftir þessu liði,“ segir Arnar Freyr Magnússon sem fór til Suður-Kóreu ásamt frænda sínum Heimi Hannessyni í nokkra daga fyrir stuttu.

Vill fá laun fyrir hárið

Leikarinn Matthew Morrison segir hárið sitt vera eins og persónu út af fyrir sig í grínþáttunum Glee. Honum finnst þess vegna að tvöfalda ætti laun hans.

Jack Sparrow óður í HM

Leikarinn Johnny Depp er nú staddur á Hawaii þar sem hann hleypur á milli taka til þess að fylgjast með HM í Suður-Afríku.

Óvænt myndataka með Havnevik

Norska söngkonan Kate Havnevik var stödd á landinu og var ljósmyndarinn Rebekka Guðleifsdóttir kallaður til að taka af henni myndir.

Fengu milljón í styrk til að kynna veggjalist

Hópur ungra veggjalistmanna fékk á dögunum um milljón króna styrk frá samtökunum Evrópa unga fólksins. Styrkinn fengu þau fyrir að fara í hringferð um landið og kynna veggjalistina.

Butler og Lohan daðra

Stjörnurnar fóru saman úr sundlaugarteiti í Hollywood í fyrrinótt og létu hvort annað ekki vera allan tímann að sögn sjónarvotta.

Bachelorette Ísland í kvöld

Í kvöld fá amerískir áhorfendur að sjá piparjónkuna Ali Fedotowsky leita að hinni sönnu ást á Íslandi í sjöttu seríunni af Bachelorette.

Vill aftur til Íslands sem fyrst

Listakonan Sarah Applebaum er á meðal þeirra listamanna taka þátt í sýningunni Lykkjur - Prjónalist í Norræna húsinu sem opnaði á Þjóðhátíðardaginn.

Þær gerast ekki liðugri - myndband

„Það er til þess að við náum að vinna betur með líkamann. Það opnast á þetta flæði..." útskýrði Jóhanna Karlsdóttir hotjógakennari í Sporthúsinu þegar við spurðum hana um íþróttina eftir 90 mínútna hotjóga tíma í gær. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Jóhönnu og jógastöðurnar sem hún sýnir okkur. Hotyoga.is Sporthúsið.is (Hotjóga)

Brunasár Herra Hinsegin - mynd (ath ekki fyrir viðkvæma)

„Ég er reyndar með frekar mikinn sviða í fingrunum en annars hef ég það bara fínt," segir Herra Hinsegin Vilhjálmur Þór Davíðsson sem skaðbrenndist í vinnunni 13. júní síðastliðinn þegar við spurðum út í líðan hans. „Ég er reyndar með frekar mikinn sviða í fingrunum en annars hef ég það bara fínt," bætir hann við. „Ég keyrði norður í gær og ætla að eyða helginni í rólegheitum í faðmi fjölskyldu og vina í firðinum fagra." „Eins og hendurnar á mér eru akkúrat núna, þá er hótel mamma eina vitið."

Fagurklæddar stórstjörnur

Þrjár stórmyndir voru frumsýndar nú fyrir stuttu og mættu stjörnurnar í sínu fínasta pússi til að fagna nýútkomnum kvikmyndum.

Hugsar sinn gang

Tímaritið The National Enquirer heldur því fram að leikkonan Sandra Bullock sé að íhuga hvort hún geti í raun fyrirgefið fyrrum eiginmanni sínum hliðarspor hans.

Opnar íslenskt kaffihús í Kaupmannahöfn í sumar

Athafnakonan Dóra Takefusa opnar nýtt kaffihús í Kaupmannahöfn um miðjan júlí. Framkvæmdir eru í fullum gangi í flottu húsnæði á Norðurbrú og hönnuðurinn Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir sér um að hanna staðinn.

Ósáttir foreldrar

Leikarinn úr Gossip Girl, Chace Crawford, var handtekinn í Texas fyrir stuttu og ákærður fyrir að hafa eiturlyf í fórum sínum. Leikarinn sat í bíl ásamt vini sínum þegar lögreglu bar að garði. Við leit í bílnum fannst jóna og voru piltarnir handteknir í kjölfarið og verði Crawford fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér sex mánaða fangelsisdóm.

Óþekktarormar fræga fólksins í Hollywood

Tímaritið In Touch tók viðtöl við nokkrar fyrrum barnfóstrur ríka og fræga fólksins nýverið og að sögn barnfóstranna eru börnin mörg hver heldur dekruð. Fyrrverandi barnfóstra barna Angelinu Jolie og Brads Pitt sagði að henni hefði reynst erfitt að hafa hemil á barnaskaranum sem hljóp um húsið og skemmti sér.

Steindi leggur drög að nýrri seríu

„Það verður önnur sería. Það á eftir að ganga frá og svona, en það vilja allir aðra seríu og það verður önnur sería," segir grínistinn Steindi Jr.

Ljósmyndabók um eldgosið

Ljósmyndabókin Eldur uppi kemur út í kilju á næstunni. Salka gefur út bókina sem fjallar í myndum um eldgosið í Eyjafjallajökli í gegnum linsu ljósmyndarans Vilhelms Gunnarssonar.

Þrettán ára ökuníðingur

True Blood-leikarinn Stephen Moyer svaraði tuttugu spurningum í grein í karlaritinu Playboy fyrir skemmstu og talaði meðal annars um samband sitt við mótleikkonu sína Önnu Paquin. Hann viðurkenndi einnig að hafa misst ökuprófið sautján ára gamall eftir að hafa verið tekinn fyrir ölvunarakstur.

Ætlar að koma Íslandi aftur á kortið

Stefán Sölvi Pétursson vann keppnina sterkasti maður Íslands sem haldin var 17. júní. Hann er ekki óvanur því að vinna titla en þetta er í annað sinn sem Stefán er sterkasti maður Íslands ásamt því að vera þrefaldur Vestfjarðavíkingur.

Átti erfitt með að viðurkenna frægðina - myndband

„Ég er að vinna í nýrri plötu. Það er allt að gerast í mínu lífi. Sko ég verð að segja þér eitt. Ég er á líkamlegum hápunkti, andlegum og tónlistarlegum hápunkti..." segir Herbert Guðmundsson tónlistarmaður í upphafi samtals okkar þegar við heimsóttum hann á heimili hans í dag. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Herbert og sjá og heyra hann syngja.

Stjörnulögmaður: Þingmenn með skítalaun - myndband

„Ég er með pólitíska bakteríu og var í borgarstjórn á sínum tíma en maður hefði ekki efni á því í dag. Úff... þetta eru skítalaun sem þingmenn eru með. Vanþakklátt starf.." sagði Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttalögmaður þegar við heimsóttum hann í vinnuna í dag. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Svein Andra.

Pant fara á Players ef selebin mæta - myndir

Meðfylgjandi myndir voru teknar á skemmtistaðnum Players í Kópavogi 16. júní síðastliðinni þegar staðurinn átti 10 ára afmæli. Eins og myndirnar sýna leiddist stjörnunum ekki þegar Erpur Eyvindarson tróð upp og tryllti mannskapinn.

Flýgur hvert sem er fyrir kynlíf

Cameron Diaz segir það ekki óvenjulegt að ferðast fyrir kynlíf í stjörnubransanum. Líkami hennar krefjist þess að hún fari þar sem kynlífið er.

Það fengu allir gæsahúð á Grímunni - myndband

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Árna Tryggvason leikara taka við heiðursverðlaunum á Grímunni og þegar hann og Atli Rafn Sigurðsson leikari sungu á eftirminnilegan hátt með aðstoð viðstaddra lag Lilla klifurmús úr leikritinu Dýrin í Hálsaskógi „Dvel ég í draumahöll".

Miley: Ég er engin glyðra

Táningsstjarnan Miley Cyrus hefur hneykslað marga með klæðaburði sínum á sviði undanfarið, en hann þykir afar ögrandi. Þá hefur farið fyrir brjóstið á mörgum þegar hún rekur kvenkyns dansara rembingskoss á munninn á sviði.

Bjartmar leikur spilltan yfirlækni

Spilltur yfirlæknir vill rífa bæjarleikhús til að byggja lúxus sjúkrahótel í kvikmyndinni L7 - Hrafnar, Sóleyjar og Myrra en tökur á henni hefjast í sumar. .

Kardashian-systur gefa góð ráð í bók

Systurnar Kim, Kourtney og Khloe Kardashian vinna nú saman að bók. Í bókinni verður kafað djúpt ofan í óþrjótandi viskubrunna systranna ásamt því að fjölmargar myndir af þeim munu gleðja augu lesenda.

Kelar við Cruise - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá leikarahjónin Tom Cruise og Katie Holmes knúsa hvort annað á rauða dreglinum á frumsýningu kvikmyndarinnar Knight and Day í Sevilla á Spáni í gær. Þá má einnig sjá mótleikkonu Tom í myndinni, Cameron Diaz.

David Spade með ofurskutlu

Ein skrýtnasta pörun í sögu Hollywood átti sér stað á dögunum. Þá sást gríngosinn smávaxni, David Spade, ásamt ofurskutlunni og matargyðjunni Padma Lakshimi.

Snýst um að halda lífi í Kvosinni

„Þetta snýst um að halda lífi í Kvosinni og gefa ungum og upprennandi tónlistarmönnum tækifæri til að koma fram,“ segir Teitur Björgvinsson, einn af skipuleggjendum tónlistarhátíðarinnar Músmos.

Sjá næstu 50 fréttir