Fleiri fréttir

Kynlíf, dóp og rokk og ról

Endurminningar þekktra tónlistarmanna hafa verið vinsælar í gegnum tíðina. Fréttablaðið tók saman lista yfir nokkrar erlendar sjálfsævisögur sem eru nýkomnar út eða eru væntanlegar á næsta ári.

Watts minnist Ledgers

Leikkonan Naomi Watts opnaði sig í fyrsta sinn um samband sitt og leikarans Heith Ledgers í viðtali við tímaritið More. Ledger lést árið 2008, aðeins 28 ára að aldri.

Vanþekking á ávöxtum leiddi þá saman

"Við Pétur ætlum að rugla saman reitum," segir grínistinn Þorsteinn Guðmundsson. Þorsteinn vinnur nú að uppistandssýningu með öðrum grínista og ekki síðri; Pétri Jóhanni Sigfússyni ásamt trommaranum knáa Helga Svavari Helgasyni. Sýningin verður á sviði Gamla bíós og hefst í lok október eða byrjun nóvember.

Óskar kominn á samning ytra

Kvikmyndaleikstjórinn Óskar Þór Axelsson er kominn í ansi góðan hóp kvikmyndagerðarmanna því hann skrifaði nýlega undir samning við umboðsskrifstofuna William Morris Endeavor sem er sú stærsta í heiminum. Meðal skjólstæðinga skrifstofunnar eru leikstjórar á borð við Michael Bay, Tim Burton, Michael Moore, Aaron Sorkin og Quentin Tarantino og leikara eins og Ben Affleck, Amy Adams og Charlize Theron.

Ó já þú rokkar í rauðu gallabuxunum

Leikkonan Leighton Meester, 25 ára, sem fer með hlutverk Blair í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl, var mynduð ásamt vinkonum sínum í New York í gær, sunnudag. Blair og ég erum ekkert líkar þegar kemur að sjálfsmati því hún veitir óöryggi sínu allt of mikla athygli, sagði Leighton spurð hvort hún væri lík Blair. Eins og sjá má á myndunum var Leighton klædd í rauðar gallabuxur með hatt á höfði. Þá má líka sjá stelpuna uppábúna í myndasafni.

Blása á skilnaðarsögur

Hjónin Will Smith og Jada Pinkett Smith brosa blítt til ljósmyndara þessa dagana og það sama má segja um börnin þeirra en meðfylgjandi myndir voru teknar...

Kasólétt í ræðustól á bókamessunni í Frankfurt

„Ég á að eiga seint í nóvember en það er ekkert að mér, ég er mjög lipur og fer allra minna ferða sjálf. Ég hef ekkert tekið þann pólinn í hæðina að leggjast með tærnar upp í loft heldur hef ég bara verið mjög vinnufær síðustu daga,“ segir rithöfundurinn Guðrún Eva Mínervudóttir.

Krakkar kyssa ævisögu Biebers

„Hún er búin að ganga ótrúlega vel. Við förum í endurprentun áður en við vitum af,“ segir Tómas Hermannsson hjá Sögum útgáfu. Ævisaga popparans Justins Bieber hefur fallið vel í kramið hjá aðdáendum hans hér á landi síðan hún kom út fyrir mánuði. Fyrsta upplagið var upp á tvö þúsund eintök og er það í þann mund að klárast.

Úr blúndu í latex

Leikkonan Anne Hathaway, 28 ára, var klædd í kattarkonugallann við tökur á næstu Batman kvikmyndinni The Dark Knight Rises með leikurunum Christian Bale og Gary Oldman. Þá má sjá Anne klædda í Alexander McQueen blúndukjól þegar hún kynnti nýju kvikmyndina sína One Day.

Mynd Hugleiks ferðast víða

„Þessi mynd er orðin eitthvað sem kallast internet meme,“ segir skopteiknarinn og grínistinn Hugleikur Dagsson.

Á annan veg fékk góðar viðtökur í San Sebastian

„Þetta gekk ótrúlega vel og myndin fékk mjög góð viðbrögð,“ segir Davíð Óskar Ólafsson, framleiðandi myndarinnar Á annan veg. Myndin var sýnd á San Sebastian-kvikmyndahátíðinni í vikunni en hún keppir í svokölluðum New Directors Award-flokki. Verðlaunin eru ekki af verri endanum, 15 milljónir íslenskra króna, sem skiptast bróðurlega milli leikstjóra sigurmyndarinnar og spænsks dreifingaraðila sem dreifir myndinni í spænsk kvikmyndahús.

Aðdáendur leiðir á Stones

Mick Jagger, söngvari The Rolling Stones, býst við því að meira að segja aðdáendur sveitarinnar verði orðnir leiðir á henni undir lok næsta árs. Hljómsveitin fagnar fimmtíu ára afmæli sínu á næsta ári. „Ég veit ekki hvernig haldið verður upp á afmælið. Ég er viss um að þið verðið að einhverju leyti orðin leið á Stones undir loks næsta árs. Fólk vill halda sýningar, gera sjónvarpsþætti og heimildarmyndir þannig að við þurfum að skoða þessi mál. Kannski förum við í tónleikaferð en eins og staðan er núna er ekkert ákveðið,“ sagði Jagger.

Tvítugur strákur frá Bosníu slær í gegn sem kvenfyrirsæta

Ein vinsælasta fyrirsætan á tískuvikunni í New York var Andrei Pejic, tvítugur strákur frá Bosníu. Pejic gefur stallsystrum sínum í fyrirsætubransanum ekkert eftir þrátt fyrir að vera af hinu kyninu og þykir bera dömufatnað með sóma.

Vel vöxuð

Söngkonan Fergie, 36 ára, var klædd í kirsuberjalitaðan silkikjól eftir Zuhair Murad þegar vaxmynd af henni var afhjúpuð á Madame Tussauds safninu í Las vegas. Með Fergie voru foreldrar hennar og systir.

Quarashi gefur út safnplötu

Rappsveitin Quarashi gefur út safnplötu með bestu lögum sínum fyrir jólin. Um er að ræða þriggja diska pakka, tvo geisladiska og einn DVD-disk, eftir því sem kemur fram á Facebook-síðu sveitarinnar.

Jakob Frímann gerist trúbador

„Ég geng að þessu kvíðalaust sem öðru. Maður á aldrei að vera hræddur við að ögra sjálfum sér,“ segir Jakob Frímann Magnússon.

Frægir tökustaðir kortlagðir

Hægt er að finna tökustaði íslenskra og erlendra bíómynda á síðunni Kvikmyndir.is með aðstoð Google Maps. „Kominn tími til að deila þessu á netinu," segir Eysteinn Guðni Guðnason.

Vikulegt kynlíf

Við stunduðum kynlíf fyrstu nóttina sem við hittumst með aðra stúlku með okkur og það var yndislegt..

Orðið þreyta ekki til í orðaforðanum

"Það var reyndar tilviljun að ég skyldi koma hingað í júní. Samstarfsmaður minn sem ætlaði að koma hætti við og ég hljóp í skarðið. Það gekk ótrúlega vel og fólk virtist njóta tímanna hjá mér og ég naut þess að kenna íslensku krökkunum. En þetta var bara ein helgi og mig langaði til að upplifa Ísland almennilega þannig að þegar Nanna hringdi og bauð mér að koma aftur kom ekki annað til greina en að slá til,“ segir Kameron Bink, danskennari, einn af stjörnunum úr So You Think You Can Dance 2007, sem mun kenna hjá Dance Center Reykjavík næstu tvo mánuðina.

Verður í beinni útsendingu í 750 kvikmyndahúsum

„Það er mjög gaman að fá að taka þátt í þessu ævintýri,“ segir tenórinn Garðar Thor Cortes. Hann er staddur í London um þessar mundir að æfa fyrir sérstaka afmælisuppfærslu Óperudraugsins eftir Andrew Lloyd Webber, en 25 ár eru liðin frá því að söngleikurinn var frumsýndur fyrst á fjölum West End. Óperudraugurinn hefur notið næstum fáránlegra vinsælda, hann hefur velt 3,2 milljörðum punda í miðasölu á heimsvísu, sem þýðir að hann slær við kvikmyndum á borð við Titanic og E.T. Þá hefur hann verið settur upp í 145 borgum í 27 löndum og sýndur fyrir meira en 130 milljónir leikhúsgesta.

Vildi opið hjónaband

Fyrrverandi eiginmaður leikkonunnar Goldie Hawn, Bill Hudson, segir hana hafa viljað vera í opnu hjónabandi. Hudson og Hawn voru gift á árunum 1976-80 en í nýútkominni ævisögu sinni segir Hudson að Hawn hafi ítrekað haldið framhjá honum, til dæmis með leikurunum Warren Beatty og Yves Renier. „Hún sagði alltaf við mig að við værum sálufélagar en að hún vildi vera með öðrum karlmönnum líka.“ Hudson eignaðist tvö börn með Hawn en annað þeirra er leikkonan Kate Hudson.

Heyrðu hún flaug með barnið

Angelina Jolie, 36 ára, var mynduð á flugvelli í Hampshire í England ásamt tíu ára syni sínum, Maddox. Drengurinn fékk að sitja í aftursætinu á meðan Angelina fór í flugtíma. Ég er húðflúruð og ég geng í leðri en það eru aðrar hliðar á mér sem eru sjáanlegar í kvikmyndunum mínum, sagði Angelina.

Lítur út fyrir að leiðast

Á meðfylgjandi myndum má sjá söngkonuna Nicole Scherzinger, 33 ára, í myndatöku ásamt aðstoðarliði fyrir tímaritið Vogue í Los Angeles. Allt lítur út fyrir að stelpunni leiðist fyrirsætustarfið ef myndirnar eru skoðaðar. Þá má sjá Nicole stilla sér upp með samstarfsmönnum sínum, Simon Covell og Paulu Abdul, í sjónvarpsþættinum X Factor á rauða dreglinum en Nicole er einn af dómurunum.

Sjóðheitar svei mér þá

Leikkonurnar Eva Longoria, Demi Moore, og söngkonan Mary J. Blige voru allar stórglæsilegar í bleikum kjólum á Variety kvennasamkomu á Beverly Hills hótelinu í Kaliforniu í gær. Eva í Ferragamo kjól og Demi í Victoriu Beckham kjól, Alexandre Birman skóm með Roger Vivier tösku og Pomellato eyrnalokka. Skoða má skvísurnar í meðfylgjandi myndasafni.

Dramatískt uppgjör miðaldra hjóna

Edda Björgvins og Laddi leika saman í Hjónabandssælu í Gamla bíói. „Við Laddi erum eiginlega eins og tvíburar. Við höfum samt ekki oft leikið saman í leikhúsi,“ segir Edda Björgvinsdóttir leikkona um samstarf sitt við Þórhall Sigurðsson, eða Ladda.

Einhleyp drottning

Söng- og leikkonan Queen Latifah er hætt með kærustu sinni til átta ára, Jeanette Jenkins. Latifah sást nýverið með danshöfundinum Eboni Nichols, en þær hafa verið miklar vinkonur síðustu ár.

Blanda af Mr. Bean og Bond

Enski furðufuglinn Rowan Atkinson hefur rembst eins og rjúpan við staurinn við að verða kvikmyndastjarna þótt flestum sé eflaust löngu orðið ljóst að heimavöllur hans er fyrst og fremst sjónvarp og svo safarík aukahlutverk.

Hvað í ósköpunum er í gangi hérna?

Fatahönnuðurinn Líber Íris Eggertsdóttir er konan á bak við skrautlegu hattana sem Sigríður Klingenberg er þekkt fyrir að nota. Íris selur hönnun sína á verkstæðinu sínu sem er einnig verslun á Hverfisgötu 50 í Reykjavík á fimmtudögum og föstudögum. Vinkonurnar sýna brotabrot af hönnun Írisar í meðfylgjandi myndskeiði sem við tókum í dag.

Mikið rétt fræga liðinu var boðið

Kvikmyndahátíðin RIFF var opnuð með miklum látum á miðvikudagskvöld. Mörg þekkt andlit mættu í opnunarpartýið eins og sjá má á myndunum. Opnun hátíðarinnar var bæði fagnað á skemmtistaðnum NASA og gistiheimilinu KEX.

Þrjár sýningar í Hafnarhúsinu

Það var mikið um dýrðir í Hafnarhúsinu í gær þegar þrjár sýningar voru opnaðar, D21 Hildigunnur Birgisdóttir, sýning Óskar Vilhjálmsdóttur - Tígrísdýrasmjör og Hraðari og hægari línur - Úr einkasafni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur. Fjöldi gesta var á staðnum og góð stemning eins og meðfylgjandi myndir sýna. Listasafnreykjavikur.is

Hera og Haffi tilnefnd

Söngkonan Hera Björk og þúsundþjalasmiðurinn Haffi Haff sendu frá sér lagið Feel the Love Tonight í sumar. Lagið var gefið út í tilefni af Gay Pride-hátíðinni í New York, en Hera hefur verið dugleg við að koma fram á slíkum hátíðum.

Svartur á leik seld til Sviss

Svissneska dreifingarfyrirtækið Frenetic Films hefur fest kaup á dreifingarréttinum að íslensku kvikmyndinni Svartur á leik eftir Óskar Þór Axelsson. Myndin hefur nú þegar verið seld til allra Norðurlandaríkjanna og Bretlands en þar keypti Entertainment One dreifingarréttinn. TrustNordisk sér um söluna á myndinni og hefur fjöldi annarra dreifingaraðila sýnt henni mikla athygli. Myndin byggir á samnefndri sögu Stefáns Mána og segir frá því þegar undirheimar Reykjavíkur tóku stórstígum breytingum í byrjun aldarinnar.

Sumir eru svo með´etta

Söngkonan Beyonce Knowles, 30 ára, er greinilega ekki á því að slaka á yfir meðgönguna en hún er gengin rúma fjóra mánuði með sitt fyrsta barn. Eins og myndirnar sýna stillti söngkonan sér upp með útgeislun á hæsta stigi klædd í bláan blazer jakka og hvítan kjól daginn eftir. Um var að ræða kynningar á nýja ilmvatninu hennar sem ber heiti Pulse.

Nilli móðgar Rúnar þjálfara KR

Sprelligosinn Nilli smellti sér á æfingu hjá toppliði KR nú í vikunni. Hann tók meðal annars viðtal við Rúnar Kristinsson þjálfara og auðvitað tókst Nilla að móðga hann óvart.

Felur kúluna á fyrstu sýningunum

"Ég leik konu á öllum aldursstigum, alveg frá því að hún er sex ára og þar til hún er ólétt á fertugsaldrinum,“ segir Tinna Hrafnsdóttir leikkona.

Rakst á Önnu Wintour

"Þetta er búið að ganga vel og ég man ekki einu sinni hvað ég var á mörgum sýningum," segir Brynja Jónbjarnardóttir fyrirsæta en hún var að vinna á nýafstaðinni tískuviku í London.

Klassinn hverfur þegar þú ert svona full

Breska fyrirsætan Rosie Huntington-Whiteley, 24 ára, sem leysti Megan Fox af í aðalhlutverki í kvikmyndinni Transformers 3, stillti sér upp á rauða dreglinum í vikunni stórglæsileg að vanda. Þá var Rosie, sem er fyrrum Victorias Secret fyrirsæta, mynduð haugadrukkin deginum áður. Eins og sjá má á myndunum átti hún erfitt með gang sökum ölvunar.

Mamma fílar öll nema eitt

Mugison gefur út plötuna Haglél á heimasíðu sinni í dag. Mamma hans fílar öll lögin á plötunni nema eitt, sem ku vera mikil framför.

Æfa utandyra í vetur

Kettlebells Iceland hafa verið með ketilbjölluæfingar á Ylströndinni í sumar og ætla að halda því áfram í vetur. "Það er ávanabindandi að fá súrefni í lungun samhliða æfingunum,“ segir yfirþjálfarinn Vala Mörk.

Sjá næstu 50 fréttir