

Subway-deild kvenna
Leikirnir

Dagskráin í dag: Íslandsmeistaratitillinn undir á Hlíðarenda
Að venju er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum á þessum laugardegi.

Fyrirliði nýliðanna hetjan og áberandi í yfirferð Gaupa um kvennakörfuna
Guðjón Guðmundsson fór yfir leikina tvo sem fóru fram í Domino´s deild kvenna í körfubolta í gærkvöldi þar sem Fjölnir og Haukar fögnuðu sigri.

Sturluð tilfinning að setja þetta
Margrét Ósk Einarsdóttir reyndist hetja Fjölnis er nýliðarnir unnu Breiðablik á útivelli í Dominos deild kvenna í kvöld. Lokatölur 74-71 Fjölni í vil en Margrét Ósk setti niður þriggja stiga skot þegar 20 sekúndur voru til leiksloka.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Fjölnir 71-74 | Nýliðarnir unnu í Kópavogi
Nýliðar Fjölnis hafa nú unnið tvo fyrstu leiki sína í Dominos deild kvenna. Seiglusigur í Kópavoginum í kvöld.

Blikar kæra ákvörðun KKÍ: „Trúi ekki öðru en að við vinnum það mál“
Breiðablik ætlar að kæra þá niðurstöðu KKÍ að 71-67 sigrinum gegn Val skyldi breytt í 20-0 tap. Þjálfari Blika segir furðulegt að félagið hafi ekki verið varað við því að leikmaður ætti að vera í banni.

Stöð 2 Sport stóreykur umfjöllun sína um Domino's deildirnar
Stöð 2 Sport gefur í með umfjöllun um íslenska körfuboltann í vetur.

Hildur Björg með brotinn þumal
Hildur Björg Kjartansdóttir mun ekki leika með sínu nýja liði Val næstu vikurnar eftir að hún þumalbrotnaði á æfingu.

Leik Keflvíkinga á laugardaginn frestað og óvíst með næstu leiki
Þótt keppni í Domino's deild kvenna sé nýhafin hefur kórónuveirufaraldurinn haft mikil áhrif á mótahald.

Tap meistara Vals breytist í sigur
Fanney Lind Thomas, leikmaður Breiðabliks, átti að taka út leikbann þegar hún mætti Val í fyrstu umferð Dominos-deildarinnar í körfubolta.

Kvennalið KR og Keflavíkur í sóttkví
Dominos-deildarliðin Keflavík og KR í kvennaflokki eru komin í sóttkví ef marka má heimildir miðilsins Karfan.is.

Nýliðarnir byrjuðu frábærlega og Blikakonur unnu meistaraefnin
Gaupi fór yfir fyrstu umferðina í Domini´s deild kvenna í körfubolta sem fór fram í gærkvöldi en fyrstu leikir vetrarins buðu upp á óvænt úrslit.

Sigrún Sjöfn: Ég tek þessi tvö stig
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var ekki himinlifandi með frammistöðu liðsins síns, Skallagríms, í kvöld en liðið Hauka í Hafnarfirði naumlega, 51-54.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Skallagrímur 51-54 | Bikarmeistararnir byrja á sigri
Haukar tóku á móti bikarmeisturum Skallagríms í 1. umferð Domino's deildar kvenna í körfubolta. Bæði lið ætla sér stóra hluti í vetur.

Tap hjá deildarmeisturunum og Keflavík niðurlægði KR
Breiðablik gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra stiga sigur á deildarmeisturum Vals í kvöld, 71-67, í fyrstu umferð Dominos-deildar kvenna.

Áhorfendum gæti verið vísað úr húsi taki þeir niður tölfræði á körfuboltaleikjum í vetur
KKÍ hefur gert nýjan samning við Genius Sports, aðilann sem sér um allt umsýslu-, móta- og tölfræðikerfi sambandsins.

Pálína: Valur missti ekki bara Helenu heldur líka langmesta karakterinn í Valsliðinu í fyrra
Það vita flestir að Helena Sverrisdóttir verður ekki með Valskonum í Domino´s deild kvenna í körfubolta framan af vetri en hún er ekki eini mikilvægi leikmaðurinn sem Valsliðið missti í sumar.

Breiðablikskonur með mögulega einn besta íslenska dúettinn í deildinni
Blikar tefla fram spennandi íslenskum dúett í Domino´s deildinni í vetur en margir eru spenntir fyrir því að sjá þær Sóllilju Bjarnadóttur og Isabellu Ósk Sigurðardóttur spila aftur saman með Blikum.

Spá Haukum næstefsta sæti: „Held að þær verði svakalegar“
„Ég held að þær verði svakalegar,“ segir Bryndís Guðmundsdóttir um lið Hauka sem Dominos Körfuboltakvöld spáir 2. sæti í Dominos-deild kvenna í vetur.

Spáin fyrir Domino´s deild kvenna 2020-21: Tvö lið líklegust til að keppa um deildarmeistaratitilinn (1.-2. sæti)
Domino´s deild kvenna í körfubolta hefst í kvöld með heilli umferð en síðustu daga hefur Vísir verið að spá fyrir um lokaröð liðanna og í dag skoðum við hvaða lið enda í tveimur efstu sætunum.

Ásta Júlía komin aftur heim í Val
Ásta Júlía Grímsdóttir mun styrkja kvennaliðs Vals í Domino´s deildinni í körfubolta í vetur í stað þess að spila í bandaríska háskólakörfuboltanum.

Dagskráin í dag: Gylfi og Rúnar gætu spilað og Dominos deild kvenna fer af stað
Það eru fjórar beinar útsendingar á Stöð 2 Sport í dag og í kvöld.

Lykilmaður Snæfells í sóttkví en liðið spilar | Vill að KKÍ endurskoði málið
Vegna kórónuveirusmits í Stykkishólmi sóttist Snæfell eftir því að leik liðsins við Fjölni á morgun, í Dominos-deild kvenna í körfubolta, yrði frestað. Leikurinn fer þó fram.

Spáin fyrir Domino´s deild kvenna 2020-21: Liðin sem berjast um síðustu sætin í úrslitakeppninni (3.-5. sæti)
Keflavík, Haukar og Breiðablik eru líklegust til að berjast um tvö síðustu sætin inn í úrslitakeppni Domino´s deildar kvenna en Vísir heldur áfram að spá í komandi tímabil.

Spáin fyrir Domino´s deild kvenna 2020-21: Baráttan um að sleppa við júmbósætið (6.-8. sæti)
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports telur niður í fyrsta leik Domino´s deildar kvenna með því að spá fyrir um lokastöðu í deildinni næsta vor. Í dag skoðum við fallbaráttuna.

Umfjöllun og viðtöl: Skallagrímur - Valur 74-68 | Borgnesingar skelltu Íslandsmeisturunum
Bikarmeistararnir höfðu betur gegn Íslandsmeisturunum í Meistarakeppni KKÍ í kvöld.

Sigrún Sjöfn: Töluðum um að gera þetta sem lið
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, fyrirliði Skallagríms, var að vonum ánægð með sigur Skallagríms á Val í Meistarakeppni KKÍ í körfubolta í kvöld.

Sjáðu kynningarfundinn fyrir Domino‘s deild kvenna
Íslandsmótið í körfubolta er að hefjast og í dag var kynnt árleg spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna félaganna í Dominos-deild kvenna um lokastöðuna í deildinni.

Valskonur fengu næstum því fullt hús og er spáð Íslandsmeistaratitlinum
Valsliðinu er spáð Íslandsmeistaratitlinum í Domino´s deild kvenna í körfubolta á komandi tímabili en spáin var kynnt á kynningarfundi deildarinnar í dag.

Nýliðar Fjölnis sækja sér Íslandsmeistarabakvörð
Ariana Moorer snýr aftur í íslenskan körfubolta en það muna margir eftir því þegar hún leiddi kornungt lið Keflavíkur til sigurs á Íslandsmóti og í bikarkeppni fyrir rúmum þremur árum síðar.

KR-ingar sækja leikmann til Litháen | Tvær ungar skrifa undir
Lið KR í Dominos-deild kvenna hefur styrkt sig með þremur leikmönnum fyrir komandi tímabil.