Reykjavík síðdegis
6 7 8 9 10 11 12 13 14 … 15 ›
Hárrétt að efnum sé sprautað í líkama fólks en þau séu öll þekkt Prófessor í ónæmisfræðum segir mikilvægt að upplýst umræða um bóluefnin og kórónuveiruna haldi áfram. Hann segir það misskilning að óþekkt efni eða efnasambönd séu í bóluefnum gegn Covid-19, þær upplýsingar séu allar uppi á borðum. Innlent 29.7.2021 19:13
Skoða að kalla heilbrigðisstarfsmenn úr sumarfríi Verið er að skoða að kalla heilbrigðisstarfsfólk úr sumarfríi vegna stöðunnar í faraldri nýju kórónuveirunnar hér á landi. Þetta sagði Guðrún Aspelund yfirlæknir, á sóttvarnarsviði Landlæknisembættisins, í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Innlent 26.7.2021 17:33
Ökumenn bifreiða kunna að vera ábyrgir fyrir tjóni af völdum rafskúta Ökumenn bifreiða geta þurft að bera ábyrgð á tjóni sem þeir verða fyrir af völdum rafskúta. Þetta kann þó að vera mörgum óskiljanlegt, þar sem rafskútur eru ekki leyfðar á götum. Sigrún A. Þorsteinsdóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 14.7.2021 18:51
Segir fólk leggjast í meiri rannsóknarvinnu þegar það velur sér hund heldur en maka Kristín Tómasdóttir, para- og fjölskyldumeðferðarfræðingur og rithöfundur, býður upp á fyrirbyggjandi hjónabandsráðgjöf í formi uppistands. Hún segir tilviljanir ráða of miklu þegar fólk parar sig saman og að fólk leggist í meiri rannsóknarvinnu þegar það velur sér hund heldur en maka. Lífið 8.7.2021 08:00
Mikill munur á viðbrögðum við kynferðisofbeldi milli kynslóða María Rún Bjarnadóttir, lögfræðingur, segir að nema megi ákveðinn kynslóðamun á viðbrögðum við fregnum af kynferðisofbeldi. Undanfarnar vikur hafa reynslusögur fólks af kynferðisofbeldi og -áreiti riðið yfir samfélagsmiðla og vakið mikla athygli. María segir margt benda til að við séum stödd í fjórðu bylgju femínisma og tengist hún að mörgu leiti tæknibreytingum og aðgengi að samfélagsmiðlum. Innlent 7.7.2021 16:14
Ekkert bendir til þess að gosið sé að hætta Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræðum, segir ekkert benda til þess að eldgosið í Fagradalsfjalli hætti á næstunni. Innlent 5.7.2021 21:52
Gerðu ítrekaðar tilraunir til að ræða við Hrauneigendur en var aldrei svarað Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að þyrlufyrirtækið hafi ítrekað gert tilraunir til að ná í landeigendur Hrauns á Reykjanesi þegar eldgosið í Geldingadölum var nýbyrjað en aldrei borið erindi sem erfiði. Innlent 30.6.2021 22:01
Telur mögulega saknæmt að henda sýnum kvenna með einkenni krabbameins Fæðinga- og kvensjúkdómalæknir segir að Samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana Heilsugæslunnar hafa gert lítið úr konum, sem sýnt hafa einkenni leghálskrabbameins, með því að hafa hent sýnum þeirra. Hún veltir því fyrir sér hvort förgun slíkra sýna sé mögulega saknæm. Innlent 29.6.2021 23:00
Covid-19 út, klassískt kvef inn Það er fyrirsjáanlegt: Að öllum sóttvarnaráðstöfunum hafi verið aflétt á Íslandi hefur í för með sér að sóttvarnir landsmanna verða lakari. Þessarar breytingar er strax farið að gæta á heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, þar sem nokkurt rennerí er á fólki vegna kvefsótta. Innlent 29.6.2021 11:29
Óreglulegar blæðingar eftir bólusetningu orsakast líklega af hita Ekki þarf að koma á óvart að konur geti fengið óreglulegar blæðingar eftir bólusetningu við Covid-19. Slíkt þekkist af öðrum bóluefnum og sjúkdómum og gæti skýrst af hita og bólgum, að sögn Jóns Magnúsar Jóhannessonar, sérnámslæknis í lyflækningum á Landspítalanum. Innlent 24.6.2021 23:37
Bjóða upp á spariföt til leigu í nýrri rafrænni fataleigu „Það er ríkt í okkur Íslendingum að eiga alla skapaða hluti en við þurfum kannski fara að hugsa neysluna okkar upp á nýtt,“ segir Kristín Edda Óskarsdóttir í viðtali við Reykjavík síðdegis. Lífið 23.6.2021 15:32
Kvikmyndagerð á Íslandi er mikil lyftistöng fyrir ferðaþjónustuna Um 40 prósent allra erlendra ferðamanna sem hingað koma til lands gera það eftir að hafa séð afþreyingarefni sem framleitt er á Íslandi. Innlent 21.6.2021 23:05
Síðasta ár sýni ávinning af styttri opnunartíma skemmtistaða Ásgeir Þór Ásgeirsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, kallar eftir samtali við hagsmunaaðila í miðborginni um endurskoðun á opnunartíma skemmtistaða. Hann segist hafa séð dramatíska breytingu síðasta árið, á þeim brotum sem lögregla sinnir venjulega um helgar. Innlent 14.6.2021 20:51
Leggur til sjálfsmyndabann við ferðamannastaði Jónas Guðmundsson hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg lýsir yfir áhyggjum sínum af þeirri hættu sem geti skapast við sjálfsmyndatökur ferðamanna. Hann segir að annað hvort þurfi að koma upp öruggum útsýnispöllum eða banna sjálfsmyndatökur. Innlent 7.6.2021 18:38
„Bagalegt að þurfa að reka embætti á loforðum“ Formaður Lögreglustjórafélags Íslands segir bagalegt að þurfa að reka embætti á loforðum. Hann segir styttingu vinnuvikunnar hjá lögreglumönnum þýða að ráða þurfi tugi nýrra lögreglumanna til starfa og enn fáist engin skýr svör um fjármagn frá fjármálaráðuneytinu. Innlent 2.6.2021 21:54
„Þessi déskotans veira hefur þessa eiginleika að breyta sér“ Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor í ónæmisfræði og yfirlæknir ónæmislækninga á Landspítalanum, segir rannsóknir hér á landi benda til þess að góð mótefnasvörun sé enn til staðar hjá 95 prósent þeirra sem smitast allt að fjórtán mánuðum eftir sýkingu. Þetta er í samræmi við rannsóknir vestanhafs á fólki sem smitaðist snemma í faraldrinum. Innlent 27.5.2021 22:41
Unga fólkið „efniviður í hópsýkingu“ Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn segir sjálfsagt mál að fólk geri sér glaðan dag um helgina en brýnir fyrir því að fara varlega. Þjóðin sé á lokasprettinum í kórónuveirufaraldrinum, en sá hópur sem væri líklegastur til að sækja mannfögnuði um helgina væri að stórum hluta til enn óbólusettur. Innlent 27.5.2021 19:20
Furðar sig á forgangi Eurovision-hópsins Gunnar Bragi Sveinsson þingmaður Miðflokksins birti í dag færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann furðaði sig á því að Eurovision-hópur Íslands hefði fengið bólusetningu fyrir brottför til Hollands þar sem keppnin fer fram. Hópurinn var bólusettur að beiðni Ríkisútvarpsins en smit hefur nú komið upp í hópnum. Innlent 17.5.2021 19:58
„Veirufrítt samfélag“ bratt, óraunhæft og kostnaðarsamt „Ég er bara eins og aðrir, að lesa um þetta í fréttum af þessum fundi í morgun, þar sem Þórólfur lýsir þessu sem sinni skoðun,“ segir Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um það markmið sóttvarnalæknis að stefna að veirufríu samfélagi. Innlent 8.4.2021 23:33
Liggur enn ekki fyrir hvernig konan smitaðist Enn er ekki ljóst hvernig konan sem greindist með breska afbrigði kórónuveirunnar utan sóttkvíar á miðvikudag smitaðist af veirunni. Yfir hundrað einstaklingar eru í sóttkví vegna smitsins en smitrakningarteymi almannavarna telur sig hafa náð í flestalla þá sem eru útsettir. Innlent 19.3.2021 21:02
Ingó veðurguð í sóttkví eftir að hafa skemmt í starfsmannagleði Tónlistarmaðurinn Ingólfur Þórarinsson, betur þekktur sem Ingó veðurguð, er á leið í sóttkví. Hann skemmti á starfsmannagleði ION hótela á sunnudag en einn starfsmaður sem sótti samkvæmið greindist með veiruna í gær. Lífið 18.3.2021 18:12
„Miðað við hvernig staðan er í Evrópu held ég að Íslendingar geti verið sáttir“ Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Padova í C-deildinni á Ítalíu, ræddi við Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær um stöðuna á Ítalíu vegna kórónuveirunnar. Emil býr í Verona með fjölskyldu sinni og eðlilega hefur þetta mikil áhrif á líf þeirra allra. Fótbolti 17.3.2021 07:01
Kallar eftir aðgerðum vegna aukinnar offitu barna: „Hægt að snúa þróuninni við“ Barnalæknir, sem hefur sérhæft sig í offitu barna, segir nauðsynlegt að við förum að setjast niður og skoða það hvernig hægt sé að breyta lífsvenjum og lífsstíl til þess að snúa þeirri þróun við að sífellt fleiri börn séu með ofþyngd. Hann segir að málið sé flókið og tengist aukin ofþyngd barna ekki aðeins mataræði og hreyfingu. Innlent 15.3.2021 17:51
„Ég er verndari réttarríkisins,“ segir Jón Steinar: Spyr hvort ráðherra sé að „beygja sig“ undir gagnrýni „Þetta er allt saman bull og vitleysa og byggt á einhverjum misskilningi,“ sagði Jón Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og fyrrverandi hæstaréttardómari, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 10.3.2021 17:49
Hlutfallslega margir sem fari á hjúkrunarheimili Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, segir Norðurlöndin standa Íslandi mun framar í þjónustu við eldri borgara. Þar bjóðist eldri borgurum heimahjúkrun í meira mæli og fólk fari seinna á hjúkrunarheimili en þekkist hér á landi. Innlent 8.3.2021 19:00
Hefur áhyggjur af Bitcoin-kaupum Íslendinga og líkir rafmyntinni við píramídasvindl Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri varar við kaupum á rafmyntum á borð við Bitcoin og líkir kapphlaupinu við þátttöku í píramídasvindli. Íslendingar versluðu með Bitcoin fyrir um 600 milljónir króna í janúar samkvæmt úttekt Rafmyntaráðs. Virði Bitcoin fór yfir 50 þúsund Bandaríkjadali um miðjan febrúar og kostar nú hver mynt rúmlega 6,2 milljónir króna. Viðskipti innlent 1.3.2021 17:21
Flestar skammbyssurnar íþrótta- eða atvinnutæki Lögregla verður ekki mikið vör við að skotvopnum sé smyglað til landsins. Þetta sagði Jónas Hafsteinsson, lögreglufulltrúi í leyfadeild hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við Reykjavík síðdegis í dag. Innlent 23.2.2021 20:24
Velti fyrir sér hvernig höfuðpaurarnir gátu leikið lausum hala Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi lögreglumaður, útilokar ekki að það vanti frumkvæði eða vilja hjá lögreglu til þess að hefja rannsókn þegar vísbendingar eru um ólöglega háttsemi. Löggjafinn þurfi þó að tryggja að lögregla hafi þær heimildir sem til þurfa. Innlent 22.2.2021 19:48
„Í rauninni er hægt að finna myglu í hverju einasta húsi“ Líffræðingur og lýðheilsufræðingur hjá Eflu verkfræðistofu segir að finna megi myglu í einhverjum mæli í öllum húsum. Það sé upp að vissu marki eðlilegt að mygla myndist en mikilvægt sé að vera vel vakandi og fjarlægja alla myglu sem upp kemur. Góð loftskipti gegni lykilhlutverki í baráttunni gegn myglu í húsum. Innlent 22.2.2021 18:16
„Ómögulegt fyrir okkur sem þjóð að sitja uppi með óupplýst morðmál af þessu tagi“ Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, segir morðið í Rauðagerði óhugnanlegt mál sem veki skiljanlega upp margar spurningar. Það að maður sé myrtur fyrir utan heimili sitt sé eitthvað sem þekkist ekki hér á landi. Innlent 19.2.2021 23:28