Erlent
147 148 149 150 151 152 153 154 155 … 334 ›
Nígerískir hermenn frelsa Evrópubúa Nígerískir hermenn hafa frelsað þrjá evrópska starfsmenn olíufélags, sem var rænt í Port Harvourt, fyrir nokkrum dögum. Talsmaður hersins segir að árásin á búðir mannræningjanna hefði gengið að óskum og enginn gíslanna hefði meiðst. Breskur olíustarfsmaður og þrír aðrir létu lífið í samskonar björgunaraðgerð í nóvember síðastliðnum. Erlent 12.3.2007 22:11
Stjórnarandstæðingur illa leikinn Hæstiréttur í Zimbabwe hefur skipað lögreglunni að leyfa lögfræðingum að heimsækja stjórnarandstöðuleiðtogann Morgan Tswangirai, sem er sagður illa haldinn af höfuðáverka sem hann hlaut í vörslu lögreglunnar, en hann var handtekinn ásamt tugum stuðningsmanna sinna, á bænasamkomu í gær. Erlent 12.3.2007 21:52
qaSvI´ngoch chedrwI´ Áttuð þið í smá erfiðleikum með þessa fyrirsögn ? Það er kannski ekki nema von, því þetta er klingonska. Klingonskan er töluð af hinum herskáu Klingonum sem eru aðal andstæðingar mannanna í geimvísindaþáttunum Star Trek. Ástæðan fyrir þessari fyrirsögn hér er að flytja ykkur fréttir af frændum vorum Finnum. Erlent 12.3.2007 21:33
Vilja svipta Adolf ríkisborgararétti Flokksdeild þýskra jafnaðarmanna í Brunswick vill svipta nazistaleiðtogann Hitler ríkisborgararétti, en það var einmitt í þeirri borg sem Austurríkismaðurinn Adolf Hitler fékk þýskan ríkisborgararétt fyrir 75 árum. Hitler afsalaði sér austurrískum ríkisborgararétti árið 1925, en fékk ekki borgararétt í Austurríki fyrr en árið 1932, þegar nazistar þar í bæ útveguðu honum vinnu sem opinber starfsmaður. Það var seint í febrúar. Erlent 12.3.2007 21:08
Saka Rússa um þyrluárás Forseti Georgíu boðaði öryggisráð landsins til neyðarfundar, í dag, eftir að ríkisstjórnin hafði sakað Rússa um að gera þyrluárás á umdeilt landsvæð á landamærum Georgíu og Abkasíu. Mikhail Saakashvili, forseti, sagði að þrjár rússneskar herþyrlur hefðu látið sprengjum Erlent 12.3.2007 20:43
Rifist um smokka Ríkisstjórn Brasilíu gefur tugmilljónir smokka á hverju ári til þess að draga úr útbreiðslu alnæmis og þykir hafa tekist vel til í þessu landi frjálsra ásta. Að auki reka stjórnvöld öflugan áróður fyrir notkun smokka. Brasilía er fjölmennasta ríki kaþólikka í heiminum, með 185 milljónir íbúa. Erlent 12.3.2007 20:06
Brown líst ekki á græna skatta Gordon Brown, fjármálaráðherra Bretlands, sagði í dag að þjóðir heims yrðu að taka höndum saman vegna hlýnunar jarðar, en sagði svokallaða græna skatta ekki vera vera góða lausn. Miklu betra væri að uppfræða fólk og gefa því hvata til þess að taka þátt í verndun umhverfisins. Brown tekur væntanlega við embætti forsætisráðherra af Tony Blair, í sumar. Erlent 12.3.2007 20:01
Hryðjuverkagjaldkeri handtekinn Spænska lögreglan hefur handtekið kanadiskan mann sem grunaður er um að hafa hjálpað til við að fjármagna múslims hryðjuverkasamtök. Brian David Anderson, sem er 61. árs gamall er eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir 20 milljóna dollara fjármálasvik. Talið er að hann hafi fjármagnað æfingabúðir í Afganistan. Erlent 12.3.2007 19:42
Fréttamanni BBC rænt í Gaza-borg Palestínskir vígamenn rændu í dag fréttamanni Breska ríkisútvarpsins, BBC, í Gaza-borg. Fréttamaðurinn, Alan Johnston, var á ferð í bíl sínum þegar fjórir grímklæddir menn réðust að honum og rændu. Johnston, sem hefur verið að störfum á Gaza-svæðinu í þrjú ár, mun hafa kastað frá sér nafnspjaldi sínu, þegar hann var numinn á brott, svo vitað yrði um afdrif hans. Erlent 12.3.2007 19:06
Íran næst Íraksstríðið var ólöglegt að mati Hans Blix, fyrrverandi yfirmanns vopnaeftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak. Hann segir Bandaríkjamenn hafa verið á nornaveiðum í aðdraganda stríðsins og margt sé líkt með honum og stöðunni í kjarnorkudeilunni við Írana nú. Erlent 12.3.2007 19:04
Enn barist við skógarelda Slökkviliðsmenn, í Suður-Kaliforníu, gera sér vonir um að í kvöld eða nótt verði hægt að ná tökum á skógareldum sem hafa logað í Orange-sýslu síðan snemma í gær. Um 1.200 manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Erfiðlega hefur gengið að berjast við eldana því vindasamt er á svæðinu, miklir þurrkar og hiti óvenju mikill miðað við árstíma. Erlent 12.3.2007 18:23
45 ára ferli að ljúka Jacques Chirac, Frakklandsforseti, ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri. Þetta tilkynnti hann formlega í gærkvöldi. Þar með lýkur 45 ára ferli eins litríkasta stjórnmálamanns Frakklands. Erlent 12.3.2007 18:20
Danir skammaðir fyrir fiskveiðistjórnun Evrópusambandið hefur gagnrýnt fiskveiðistjórnun Dana harðlega, og sjávarútvegsráðherra landsins viðurkennir að sú gagnrýni eigi rétt á sér. Stikkprufur sem gerðar voru hjá dönskum fiskimönnum leiddi í ljós að 13 prósent sinntu ekki skráningarskyldu sinni og lönduðu framhjá eftirlitskerfinu. Erlent 12.3.2007 17:59
75 ár fyrir að spreyja kónginn Fimmtíu og sjö ára gamall svisslensingur á yfir höfði sér allt að sjötíu og fimm ára fangelsi fyrir að spreia með úðabrúsa á fimm myndir af Bhumibol konungi Thaílands. Oliver Jufer var að eigin sögn drukkinn þegar hann spreiaði myndirnar í desember síðastliðnum. Hann hefur búið í Thaílandi í 10 ár. Lífið 12.3.2007 17:24
Hagvöxtur í Japan umfram spár Hagvöxtur mældist 1,3 prósent á fjórða ársfjórðungi í Japan í fyrra samanborið við 1,2 prósenta hagvöxt á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt útreikningum japönsku hagstofunnar. Þetta er ívið meira en greinendur höfðu gert ráð fyrir. Hagvöxtur mældist 5,5 prósent á ársgrundvelli í fyrra og hefur hann ekki verið meiri í þrjú ár. Viðskipti erlent 12.3.2007 09:32
Kínverjar framleiða farþegaþotur Kínverjar ætla að hefja smíði á stórum farþegaflugvélum sem keppa muni við flugvélarisana á markaðnum, Airbus og Boeing. Flugvélarnar eiga að koma á markað árið 2020. Kínverjar eru þegar byrjaðir á framleiðslu á flugvélum af millistærð fyrir innanlandsflug en fyrsta flugvélin kemur á markað á næsta ári. Viðskipti erlent 12.3.2007 09:18
Skildu eftir marijúana fyrir 1,4 milljarða Farmur af marijúana, að verðmæti allt að 1,4 milljörðum íslenskra króna, fannst í yfirgefnum sendiferðabíl í Kaliforníu. Bifreiðin var ólæst og vélarhlífin heit en enginn var ökumaðurinn. Erlent 11.3.2007 20:32
Simbabve nálgast suðumark Yfirvöld í Simbabve handtóku í dag einn af leiðtogum stjórnarandstöðunnar í landinu fyrir að rjúfa bann við pólitískum samkomum. Ástandið er afar viðkvæmt í landinu enda er atvinnuleysi mikið og efnahagurinn því sem næst í rúst. Erlent 11.3.2007 17:22
Snaraði þrettán fílakálfum Indverski spekingurinn Sri Chinmoy er enn í fullu fjöri þótt hann sé kominn hátt á áttræðisaldur. Í vikunni brá hann sér til Taílands þar sem hann gerði sér lítið fyrir og lyfti 13 fílakálfum á þremur dögum. Erlent 11.3.2007 17:26
Rændi 101 árs gamla konu Myndband sem sýnir óprúttinn ræningja hrinda hundrað og eins árs gamalli konu í gólfið og ræna svo handtösku hennar hefur vakið mikla reiði í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir mikla leit er ræninginn enn ófundinn Erlent 11.3.2007 17:13
Spánverjar minnast hryðjuverka Spánverjar minnast nú þess að þrjú ár eru liðin frá því að sprengjuárásir voru gerðar á lestarkerfi landsins en 191 lést í árásunum. 11 metra hár minnisvarði úr gleri var afhjúpaður í því tilefni en innan í hann eru áritaðar samúðaróskir og saknaðarkveðjur sem skrifaðar voru í kjölfar árásanna. Erlent 11.3.2007 18:14
Bush fer til Kólumbíu Þúsundir lögreglumanna og hermanna fylltu götur Bogota í Kólumbíu áður en George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, kom þangað í dag. Heimsókn hans er sú síðasta í röð heimsókna til landa í Suður-Ameríku áður en hann snýr heim á leið. Innlent 11.3.2007 17:49
Olmert fundar með Abbas Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, kom til Jerúsalem í dag til þess að eiga viðræður við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu. Þetta er annar fundur þeirra á innan við mánuði. Búist er við því að viðræðurnar eigi eftir að snúast um nýlegt samkomulag Fatah og Hamas hreyfinganna um þjóðstjórn í Palestínu og hvernig samskiptum Ísraels við hana verður háttað. Erlent 11.3.2007 16:10
Búist við því að Chirac bjóði sig ekki fram á ný Búist er við því að Jacques Chirac, forseti Frakklands, muni tilkynna í kvöld að hann ætli sér ekki að bjóða sig fram á ný. Yfirlýsingin verður flutt klukkan sjö í kvöld að íslenskum tíma. Erlent 11.3.2007 15:38
Bandaríkin flýta klukkunni Bandaríkjamenn hafa flýtt klukkum sínum eina klukkustund þremur vikum fyrr en venjulega. Þetta gera þeir til þess að spara orku og menga minna. Þingmenn segja að þetta muni minnka til muna útblástur skaðlegra efna í andrúmsloftið og gæti sparað almenningi miklar fjárhæðir. Erlent 11.3.2007 14:58
Íranar bjartsýnir eftir friðarráðstefnu í Bagdad Utanríkisráðuneytið í Íran sagði í dag að alþjóðlega ráðstefnan í Bagdad, þar sem Íran og Bandaríkin áttu fyrstu viðræður síðan árið 2003, hefði verið gott fyrsta skref í áttina að auknu öryggi og stöðugleika í Írak. Ráðamenn í Tehran gáfu einnig til kynna að þeir vonuðust til þess að seinni fundurinn um málefni Íraks eigi eftir að verða jafngóður. Seinni fundurinn á að eiga sér stað í Apríl og hann munu sækja utanríkisráðherrar þeirra landa sem sem sóttu fundinn í gær. Erlent 11.3.2007 14:29
Leiðtogar stjórnarandstöðu í Zimbabwe handteknir Yfirvöld í Zimbabwe hafa handtekið leiðtoga stjórnarandstöðunnar þar í landi fyrir að hafa ætlað að halda fjöldabænafund þrátt fyrir bann stjórnvalda við að halda pólitískar samkomur. Erlent 11.3.2007 14:12
Dómari í máli Saddams flýr Írak Yfirdómarinn í máli Saddams Hússeins hefur flúið Írak og beðið um pólitískt hæli í Bretlandi. Dómarinn, Raouf Abdel-Rahman, er hluti af hinum kúrdíska minnihluta í Írak. Hann var yfirdómari í dómstólnum sem fann Saddam Hússein sekan og dæmdi hann síðan til dauða. Erlent 11.3.2007 14:06
Hamas og Fatah takast á Liðsforingi í Hamas samtökunum lét lífið í dag í skotabardögum við liðsmenn Fatah hreyfingarinnar á norðuhluta Gaza-svæðisins. Átökin hófust í Beit Hanoun en þar voru gerðar árásir með klasasprengjum og handsprengjum í morgun. Erlent 11.3.2007 13:35
Stefnir í uppgjör í Zimbabwe Stjórnarandstæðingar í Zimbabwe hafa heitið því að halda samkomu þrátt fyrir að stjórnvöld hafi sett bann á allar stjórnmálasamkomur næstu þrjá mánuði. Bannið var sett á vegna ofbeldis sem braust út á samkomu stjórnarandstæðinga í síðasta mánuði. Erlent 11.3.2007 12:34