Hrannar Hólm valinn þjálfari ársins í Danmörku Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. apríl 2010 13:30
Hrannar Hólm var á dögunum valinn besti þjálfarinn í dönsku kvennadeildinni í körfubolta en hann hefur gert frábæra hluti með SISU-liðið síðan hann tók við liðinu á miðju tímabili. Karfan.is segir frá þessu í dag. Hrannar tók við liðinu þegar þjálfari þessa var látinn fara og liðið var í 8. sæti af 9. liðum í deildinni. Hrannar vann 9 af næstu 11 leikjum og kom liðinu upp í efri hlutann og alla leið í undanúrslit úrslitakeppninnar. Það voru allir þjálfarar deildarinnar sem kusu Hrannar besta þjálfarann. Hrannar fór yfir hvernig þetta allt kom til í viðtali á Karfan.is. „Það var nú þannig að við fjölskyldan fluttum til Danmerkur s.l. sumar og fljótlega fór dóttir mín (Helena Brynja Hólm) að æfa með SISU. Tímabilið hófst og það gekk frekar illa og óánægja var með margt. Þannig fór að þjálfarinn var látinn fara og var liðið þá í 8. sæti af 9 liðum í úrvalsdeildinni (Dameligaen). Í kjölfarið hafði formaður félagsins samband við mig, þar sem hann hafði frétt af því að ég væri gamall körfuhundur og spurði hvort ég væri til í að aðstoða og ég ákvað að gera það, bæði var dóttir mín í liðinu og svo var ég með aðstoðarmann sem átti að taka æfingar fyrir mig þegar ég kæmist ekki sökum vinnu. Í raun hafði ég ekki mikinn tíma í þjálfunina en sló samt til af því að það er jú gaman í körfu og ég hafði ekki þjálfað í háa herrans tíð :) En síðan flutti Helena Brynja til Íslands (og lék í vetur með Haukum) og aðstoðarmaðurinn veiktist þannig að ég sat einn uppi með liðið - ef svo má segja," sagði Hrannar í viðtali við Karfan.is. SISU-liðið komst síðan í gegnum sex liða úrslit úrslitakeppninnar og inn í undanúrslitin á móti Aabyhøj þar sem liðið datt út eftir oddaleik. SISU endaði í 4. sæti eftir tap á móti Amager um síðustu helgi.
Körfubolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira