Ætla að fá sjóræningja til að veiða 30. ágúst 2011 22:00 Fiskistofnar úti af ströndum Sómalíu hafa dafnað í skjóli sjórána síðustu árin.nordicphotos/AFP
Hópur Dana vonast til þess að geta hjálpað sjóræningjum í Sómalíu að segja skilið við glæpastarfið og leggja fyrir sig fiskveiðar á ný, en margir þeirra eru sjómenn sem enga atvinnu hafa og stunda því sjórán. Danirnir ætla, í samvinnu við stjórnvöld og hjálparstofnanir, að kaupa eða leigja færeyska eða grænlenska togara til að veiða á miðum úti af strönd Sómalíu. Frá þessu er skýrt á vefsíðum danska dagblaðsins Politiken. Undanfarin ár, meðan sjórán hafa fælt fiskiskip annarra þjóða frá miðunum úti af Sómalíu, hafa fiskistofnarnir fengið frið til að stækka. Hugmyndin er sú að fara með stóra verksmiðjutogara á þessar slóðir og fara þar að dæmi Grænlendinga og bjóða heimamönnum að sigla upp að togurunum og kaupa þar af þeim fisk sem þeir hafa veitt á eigin bátum. Það er danskur blaðamaður, Jakob Johannsen, sem er frumkvöðull þessarar tilraunar. Hann hefur áður starfað með hjálparstofnunum á borð við Barnaheill og Lækna án landamæra. „Hugmyndin er sú að sjómenn á staðnum, sem taka þátt í verkefninu, fái borgað svo mikið reiðufé fyrir útflutninginn að þeir kjósi að vera sjómenn frekar en sjóræningjar,“ segir Johannsen.- gb
Mest lesið Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Innlent Gæti orðið ófært í Þórsmörk Innlent Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Innlent Halla verði að upplýsa um bílakaupin Innlent Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Innlent Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Innlent Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Innlent Skökk gangstéttarhella eyðilagði líf Ragnheiðar Innlent Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Innlent „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Innlent Fleiri fréttir Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Þriðja ungmennið handtekið vegna drápsins í Landskrónu Fundu óvænt merki um mögulegt örverulíf á Mars Weinstein lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 og lungnabólgu Vaxandi áhrif hlýnunar á úrkomumynstur og fellibyli Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna Obama-hjónin lýsa yfir stuðningi við Harris Skemmdarverk unnin á hraðlestarlínum umhverfis París Einn valdamesti fíkniefnabarón heims handtekinn Neitar að staðfesta kappræður við Harris fyrr en eftir útnefninguna Sagðist ekki myndu þegja um Gasa eftir fund með Netanyahu Trump veltir fyrir sér möguleikanum á því að vera myrtur af Írönum Skógareldar í Jasper-þjóðgarðinum dreifast í byggð Gögn benda til aðkomu Sameinuðu arabísku furstadæmanna í Súdan Ruslabelgir frá Norður-Kóreu raska flugferðum og kveikja eld Fjórtán ára stúlka myrt í Svíþjóð og jafnaldrar hennar í haldi Fundu lík fimm Ísraelsmanna í Khan Younis Flugferð Icelandair aflýst vegna mótmæla á flugvelli Barist við olíuleka og flóð í kjölfar fellibylsins Gaemi Lögreglumaður traðkaði á höfði manns „Öfga vinstri brjálæðingur“ og „Lygna-Kamala“ Segir persónulegan metnað ekki mega standa í vegi fyrir lýðræðinu Netanyahu fékk standandi lófatak frá Bandaríkjaþingi Fjöldi mótmælir við sögulegt ávarp Netanjahú Frakklandsforseti blandar sér í mál hvalavinarins Sjá meira