Fótbolti

Englendingar mörðu tíu Portúgala

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rooney í baráttunni í kvöld.
Rooney í baráttunni í kvöld. vísir/getty
England vann 1-0 sigur á Portúgal í vináttulandsleik á Wembley í kvöld.

Það var Chris Smalling sem skoraði eina mark leiksins fjórum mínútum fyrir leikslok.

Portúgal var manni færri frá 35. mínútu er Bruno Alves var rekinn af velli fyrir að sparka í andlitið á Harry Kane.

Það tók England svo langan tíma að brjóta tíu Portúgala niður en það hafðist að lokum.

Cristiano Ronaldo lék ekki með Portúgal í kvöld enda fékk hann lengra frí eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×