Fótbolti

Kærasta Chicharito tók viðtalið og þetta var útkoman | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Javier Hernandez og kærasta hans Lucia Villalon Puras.
Javier Hernandez og kærasta hans Lucia Villalon Puras. Vísir/Getty
Javier Hernandez eða Chicharito eins og flestir kalla hann fór í frekar sérstakt viðtal skömmu fyrir fyrsta leik Mexíkó í hundrað ára afmælisútgáfu Ameríkukeppninnar en liðið mætti Úrúgvæ í nótt.

Mexíkó vann leikinn á endanum 3-1 og byrjar því keppnina vel en Chicharito komst þó ekki á blað að þessu sinni þrátt fyrir að hafa spilað fyrstu 82 mínúturnar.

Viðtalið sem hann fór í fyrir leikinn truflaði kannski þennan mikla markaskorara sem átti mjög gott tímabil með Bayer Leverkusen eftir að hvorki Manchester United né Real Madrid hafði not fyrir hann.  

Það var spænska sjónvarpskonan Lucia Villalon Puras sem tók viðtalið við Chicharito en hún hefur einnig verið kærasta kappans í meira en eitt ár. Chicharito er ekki fyrsti fótboltamaðurinn sem Lucia er með því spænskir fjölmiðlar skrifuðu á sínum tíma um samband hennar og Cristiano Ronaldo.

Kærastan spurði Javier Hernandez meðal annars út í hvað hann gerði á leikdegi og hversu ánægður hann væri með að leikurinn færi fram í innanhúss enda er mjög heitt í Phoenix þessa dagana. Viðtalið fór einnig fram á ensku en ekki á spænskunni sem aðaltungumál þeirra beggja.

Javier Hernandez sagði meðal annars frá því í viðtalinu að hann væri að fara að leggja sig eins og hann gerir alltaf á leikdegi. Það kom þó ekki fram hvað kærastan ætlaði að gera á meðan. Það er hægt að sjá þetta sérstak viðtal skötuhjúanna hér fyrir neðan.

Want to know @ch14_instagram's thoughts ahead of @miseleccionmx's @copaamericacentenario opening match with Uruguay? The @bayer04fussball star's girlfriend, Spanish journalist and presenter @lucia_villalon, brings you exclusive behind-the-scenes content and regular updates from the Copa America. Join her for part one only on bundesliga.com. +++ #Javier 'Chicharito' #Hernandez exklusiv: Wenige Stunden vor #Mexikos Copa-Auftakt gegen Uruguay spricht der Leverkusen-Superstar im Interview mit seiner Freundin, der Journalistin und Moderatorin #Lucia #Villalon #Puras, über das Duell der #ElTri mit den Südamerikanern. Mehr zu Lucias Copa-Blog findest du exklusiv auf bundesliga.com. #Copa100 #MexUru #MexVUru #CopaAmerica #Chicharito @bayer04fussball #bayer #bayer04 #leverkusen #mexico #uruguay #mexicouruguay #copaamerica @copaamericacentenario #copaamericacentenario @copaamericausa2016 #copaamericausa2016 #phoenix #preview

A video posted by Bundesliga (@bundesliga_en) on




Fleiri fréttir

Sjá meira


×