Sex milljarðar ekki nóg fyrir Chelsea til að landa stjörnu frá Napoli Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. júní 2017 13:45 Lorenzo Insigne er eftirsóttur. vísir/getty
Enska úrvalsdeildarliðið Chelsea þarf að opna veskið upp á gátt ætli það að kaupa ítalska sóknarmanninn Lorenzo Insigne frá Napoli. Enska götublaðið The Sun hefur greint frá því að Chelsea sé að íhuga 45 milljóna punda tilboð í leikmanninn eða tæplega sex milljarða króna tilboð. Insigne skoraði 18 mörk fyrir Napoli í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið til ársins 2022 í apríl og segist vera ánægður hjá félaginu. Franco della Monica, umboðsmaður Insigne viðurkennir að mikill áhugi er á leikmanninum en tæpir sex milljarðar munu ekki duga til að kaupa hann frá Napoli. „Fyrst vil ég segja að tilboðið sem The Sun greindi frá er of lágt en hann er og hefur lengi verið undir smásjá stærri félaga. Hann einbeitir sér þó að Napoli núna og var verðlaunaður fyrir frammistöðu sína á dögunum,“ segir Franco Della Monica í útvarpsviðtali. Lorenzo Insigne er 26 ára gamall sóknarmaður sem er uppalinn hjá Napoli en eftir að spila einn leik fyrir liðið 18 ára gamall fór hann til Foggia en kom svo aftur árið 2011. Hann hefur skorað 20 mörk í 64 leikjum á síðustu tveimur leiktíðum í ítölsku A-deildinni.
Enski boltinn Mest lesið Líst ekkert á að fertug Vonn snúi aftur: „Ég myndi dauðskammast mín“ Sport Hætti ungur í landsliðinu og fór beint á Prikið Íslenski boltinn „Er þetta ekki komið gott af pólitík?“ Íslenski boltinn Þrjár breytingar á landsliðshópnum | Aron ekki með Handbolti Fjórtán ára stúlka í langt bann fyrir að dópa Sport Sjáðu ævintýralega björgun og mistök Glódísar Fótbolti Kennir sjálfum sér um uppsögnina Enski boltinn Dulin skilaboð frá Mo Salah eftir leik helgarinnar Enski boltinn Hannes í leyfi Körfubolti Tyson æfir á sveppum og ætlar að taka ofskynjunarlyf fyrir bardagann Sport Fleiri fréttir Íslandshrellir bjargaði Fulham með ótrúlegum hætti Meiddur Ödegaard gifti sig í leyni Skoraði stórglæsilegt mark og ætlar að horfa á það aftur og aftur Edu yfirgefur Arsenal Liverpool-stjarnan slapp með skrekkinn Skilur ekki hvernig Lisandro Martínez slapp við rauða spjaldið Dulin skilaboð frá Mo Salah eftir leik helgarinnar Kennir sjálfum sér um uppsögnina Fyrsta mark Fernandes dugði til stigs gegn Chelsea Willum skoraði sigurmarkið í fyrstu umferð FA bikarsins Tottenham skoraði fjögur mörk í seinni hálfleik eftir að hafa lent undir „Ég held að við getum orðið enn betri“ Jafnt eftir markaveislu í mikilvægum slag á fallsvæðinu Guðlaugur Victor horfði þrisvar á eftir boltanum í netið gegn Leeds Nottingham Forest í þriðja sæti og Southampton með fyrsta sigurinn Bournemouth slapp með sigur eftir stangarskot í uppbótartíma Toppsætið tryggt með tveimur mörkum á tveimur mínútum Of ungur fyrir Man. Utd að mati Hareide Svíinn sá um Arsenal með frábærum skalla Sky segir Liverpool með tvo í sigtinu sem arftaka Salah Gary Martin búinn að finna sér nýtt lið „Passar fullkomlega við svona félag“ Man. Utd kynnir nýja stjórann til leiks Ten Hag niðurbrotinn þrátt fyrir milljarðana Jürgen Klopp enn fúll út í Sergio Ramos Van Nistelrooy til í öll störf og vill vera áfram hjá Man. United Guardiola segist bara vera með þrettán heilbrigða leikmenn Hefur ekki efni á sjálfum sér: „Þeir sögðu nei“ Lítur út fyrir að United þurfi að bíða eftir Amorim Liverpool, Arsenal og Manchester United sluppu við hvert annað Sjá meira