Eins ítalskt og það verður hjá AC Milan

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Sigurmarkinu fagnað.
Sigurmarkinu fagnað. Claudio Villa/Getty Images

AC Milan, liðið sem situr í 4. sæti Serie A með 52 stig, vann 1-0 sigur á Napoli, liðinu í 1. sæti Serie A með 74 stig, í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Napoli er með níu fingur og níu tær á ítalska meistaratitlinum á meðan AC Milan er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. Það er samt sem áður ekki langt síðan AC Milan gjörsigraði Napoli 4-0 og mátti því búast við hörkuleik á San Siro í Mílanóborg.

Það hjálpaði ekki að Victor Osimhen, stjörnuframherji Napoli, var fjarri góðu gamni í kvöld vegna meiðsla. Það nýttu heimamenn sér en þeir unnu eins og áður sagði 1-0, varnarsigur, í kvöld.

Ismael Bennacer skoraði sigurmarkið á 40. mínútu með glæsilegu skoti eftir sendingu frá Rafael Leão. Danski miðvörðurinn Simon Kjær var reyndar nálægt því að tvöfalda forystuna undir lok fyrri hálfleiks en skalli hans eftir hornspyrnu fór í slánna.

Í síðari hálfleika sóttu gestirnir hvað þeir gátu en tókst ekki að finna leiðina framhjá Mike Maignan í marki Milan. Það hjálpaði svo ekki Napoli að Andre Anguissa nældi sér í tvö gul spjöld með stuttu millibili í síðari hálfleik og var því sendur í sturtu. Manni færri tókst Napoli ekki að jafna metin og lauk leiknum með 1-0 sigri AC Milan.

Gestirnir frá Napoli voru meira með boltann í kvöld og sköpuðu sér fleiri færi en Maignan stóð vaktina vel í marki heimamanna og þá stóð vörnin sína plikt.

Síðari leikur liðanna fer fram eftir viku og ljóst er að Milan þarf aðra eins varnarframmistöðu ætli liðið sér alla leið í undanúrslit.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira