Fleiri fréttir

Atli Gíslason: Úrsögn Ásmundar kemur ekki á óvart

"Þetta kom mér ekki á óvart. Ég vissi að þetta var í pípunum," segir Atli Gíslason, en hann sagði sig úr þingflokki VG ásamt Lilju Mósesdóttur og Ásmundi Einari Daðasyni í mars síðastliðnum. Ásmundur tilkynnti í dag að hann væri genginn í Framsóknarflokkinn.

Vigdís himinlifandi yfir ákvörðun Ásmundar Einars

"Ég er himinlifandi yfir þessum tíðindum,“ segir Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, um þá ákvörðun Ásmundar Einars Daðasonar að ganga til liðs við Framsóknarflokkinn. "Það er alltaf gaman þegar þingflokkurinn stækkar,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, varaformaður þingflokks framsóknarmanna.

Þyrla sækir erlenda hjólreiðamenn

Þyrla Landhelgisgæslunnar er nú á leiðinni til þriggja erlendra hjólreiðamanna sem eru strandaglópar á Fjórðungssandi vestan við Þjórsá, norður af Norðlingaöldu.

Skattlagning í hrópandi andstöðu við loforð ríkisstjórnarinnar

Áform um skattlagningu á lífeyri er forsendubrestur í nýgerðum kjarasamningum, að mati Alþýðusambandsins. Ljóst sé að slík skattlagning mun leiða til skerðinga á áunnum lífeyrisréttindum félagsmanna sambandsins á meðan stjórnvöld ábyrgist lífeyrisréttindi opinberra starfsmanna.

Nauðgunartilraun enn til rannsóknar

Tilraun til nauðgunar á Egilsstöðum um miðjan síðasta mánuð er enn til rannsóknar hjá lögreglu. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur einn karlmaður verið handtekinn í tengslum við málið en honum var að lokum sleppt. Hann neitar sök.

Minni niðurskurðir til tónlistarnáms

Borgarráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum þann 26. maí að hagræðing til tónlistarskóla yrði 4% á þessu ári sem er um helmingi lægri hagræðingarkrafa en gerð hefur verið undanfarin ár. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að borgaryfirvöld fagni samkomulagi ríkisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 13. maí um að efla tónlistarnám söngnema í mið- og framhaldsnámi, og hljóðfæranema í framhaldsnámi. Borgaryfirvöld hafa síðustu átta ár þrýst á um slíkt samkomulag til að tryggjja jafnræði til náms, óháð búsetu.

Bjarni: Kröfuhafar soga til sín hagvöxtinn

Fjármálaráðherra segir hugmyndir um að mikill afsláttur á lánasöfnum gömlu bankanna hafi átt að ganga til lántakenda væru úr lausu lofti gripnar. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir kröfuhafa soga til sín hagvöxtinn.

Tveir af átján reiðhjólamönnum notuðu reiðhjólarein

Átján reiðhjólamenn áttu leið um Suðurgötu í Reykjavík á meðan á hraðaeftirliti lögreglu stóð. Athygli lögreglu vakti að aðeins tveir þeirra notuðu reiðhjólareinina, hinir hjóluðu ýmist á þeim hluta götunnar sem er ætluð bílaumferð eða á gangstéttinni vestanmegin við akbrautina.

Vilja hverfa frá 15-metra reglunni

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í umhverfis- og samgönguráði telja að hverfa eigi frá innleiðingu svokallaðrar 15-metra reglu að svo komnu máli. Þetta kom fram í bókun flokksins í umhverfis- og samgönguráði í gær þar sem lagt var til að hætt sé við að innleiða regluna.

Allsherjarnefnd styður þyngri refsingar við mansali

Allsherjarnefnd leggur til að samþykkt verði frumvarp um breytingar á hegningarlögum um mansal. Annars vegar er lagt til að refsing fyrir mansal verði hækkuð úr 8 ára fangelsi í 12 ára fangelsi. Hins vegar er mælt með því að mansalsbrot tæmi ekki sök gagnvart öðrum mjög alvarlegum frelsissviptingarbrotum, líkt og nú er, enda varða slík brot þyngri refsingu en ef brotið er gegn mansalsákvæði hegningarlaganna. Frumvarpið var afgreitt úr allsherjarnefnd í gær. Í frumvarpinu er ennfremur lögð til sú breyting á hegningarlögum um mansal að heimilt verði að beita gæsluvarðhaldi og einangrun í gæsluvarðhaldi ef önnur skilyrði eru uppfyllt, það er að ætla megi að sakborningur muni torvelda rannsókn málsins, svo sem með því að afmá merki eftir brot, skjóta undan munum ellegar hafa áhrif á samseka eða vitni, eða telja megi gæsluvarðhald nauðsynlegt til að verja aðra fyrir árásum sakbornings ellegar hann sjálfan fyrir árásum eða áhrifum annarra manna. Nefndin telur að þegar litið er til eðlis þeirra brota sem um er að ræða og þeirra hagsmuna sem í húfi eru sé eðlilegt að dómstólar hafi þessi heimild.

Jeppa- og skotveiðimenn kvarta til umboðsmanns Alþingis

Ferðaklúbburinn 4X4 og Skotveiðifélag Íslands, hafa kvartað til umboðsmanns Alþingis vegna umhverfisráðherra, umhverfisráðuneytis, stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs og svæðisráðs Vatnajökulsþjóðgarðs. Kvartað er yfir því að umhverfisráðherra hafi hinn 28. febrúar 2011 staðfest stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs eins og sú áætlun lá þá fyrir.

Á fjórða tug féllu í Jemen

37 eru sagðir hafa fallið í bardögum í Sanaa höfuðborg Jemens síðastliðna nótt. Róstusamt hefur verið víða í landinu eftir að uppreisn hófst gegn Ali Abdullah Saleh forseta landsins. Var það ein fyrsta uppreisnin í því sem kallað hefur verið arabíska vorið. Saleh neitar að víkja úr embætti og hefur beitt öryggissveitum sínum óspart gegn uppreisnarmönnum.

Aðstoðuðu vélarvana bát

Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út á níunda tímanum í morgun þegar bátur varð vélarvana í innsiglingunni í höfnina í Grindavík.

Kínverjar tala ekki við Norðmenn

Kínverskir ráðamenn hafa algerlega hafnað því að ræða við Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs. Ætlunin var að hún leitaði sátta við Kínverja en sambandið milli landanna hefur verið við frostmark síðan andófsmaðurinn Liu Xiaobo fékk friðarverðlaun Nóbels á síðasta ári.

Kraftasport á Patreksfirði

Skosku Hálandaleikarnir verða haldnir á Patreksfirði dagana 2. til 6. júní. Leikarnir kallast á ensku „Iceland Highland Games". Hálandaleikarnir verða hluti hátíðahalda Sjómannadagsins sem árlega er haldinn hátíðlegur á Patreksfirði. Stjórn Sjómannadagsins sér um að halda leikana í samvinnu við Pétur Guðmundsson, kúluvarpara, en Pétur hefur keppt í Hálandaleikum um árabil og er núverandi heimsmethafi í steinkasti. Ákveðið var að ráðast í þessa framkvæmd vegna þess að Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur á Patreksfirði í 70 skipti og er ein stærsta hátíð sjómannsins á Íslandi. Mörgum þekktum erlendum keppendum hefur þegar verið boðið á leikana og er áætlaður fjöldi þeirra 18 manns, 6 konur, 6 karlar og 6 öldungar. Með þessum útlendingum keppa svo tveir bestu Íslendingarnir í hverjum flokki og gefur sigur Íslandsmeistaratitil.

NATO framlengir hernaðaraðgerðir í Líbíu

NATO hefur framlengt íhlutun sína í Líbíu um 90 daga. Anders Foght Rasmussen framkvæmdastjóri bandalagsins segir að þetta sendi skýr skilaboð til Moammars Gaddafi um að haldið verði áfram að verja íbúa landsins fyrir herjum hans.

Kvennahlaupið haldið í 22. sinn

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið í tuttugasta og annað sinn, laugardaginn 4. júní. Í ár er kvennahlaupið í samstarfi við Styrktarfélagið Líf og slagorð hlaupsins er "Hreyfing allt lífið". Líf styrktarfélag vinnur að því að styrkja fæðingarþjónustu og kvenlækningar á kvennadeild Landspítalans. Markmiðið er að byggja upp öfluga miðstöð fæðinga og kvenlækninga á Íslandi og mun miðstöðin þjónusta konur og fjölskyldur þeirra. Þetta er málefni sem snertir allar konur og fjölskyldur þeirra og er við hæfi að nota styrk kvennahlaupsins til að beina kastljósinu að þessu mikilvæga málefni. Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ er útbreiddasti og fjölmennasti íþróttaviðburður sem haldinn er á Íslandi ár hvert. Um 15.000 þúsund konur taka þátt á um 85 stöðum hérlendis og á 14 stöðum erlendis. Stærsta hlaupið er í Garðabæ klukkan 14, þar sem þúsundir kvenna koma saman og hlaupa. Einnig er hlaupið í Mosfellsbæ og á Akureyri klukkan 11. Nánari upplýsingar um hlaupastaði má finna á www.sjova.is <http://www.sjova.is> eða á Facebook undir Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ.

Lamdi konu og sagðist þekkja menn í Fáfni

Rétt rúmlega tvítugu karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir að ráðast á konu í samkvæmi í apríl árið 2009. Hann er sakfelldur fyrir að hafa slegið hana með flötum lófa í andlitið þannig að hún féll í gólfið, svo steig hann ofan á höfuð hennar þar sem hún lá á gólfinu og togað í hár hennar.

Konan sem uppgötvaði HIV-veiruna heldur fyrirlestur

Franski Nóbelsverðlaunahafinn dr. Françoise Barré-Sinoussi er annar tveggja öndvegisfyrirlesara Heilbrigðisvísindasviðs á aldarafmælisári Háskóla Íslands og flytur hún erindi um rannsóknir sínar í veirufræðum á málþingi sem haldið er til heiðurs íslenska lækninum og veirufræðingnum Birni Sigurðssyni. Rannsóknir próf. Barré-Sinoussi skiptu sköpum við uppgötvun HIV-veirunnar og þeirrar staðreyndar að veiran veldur alnæmi. Hún hóf veirurannsóknir sínar árið 1970 og 13 árum síðar greindi hún og samstarfsfólk hennar frá uppgötvun þeirra á veirunni sem síðar hlaut nafnið HIV. Fyrir þessa uppgötvun hlaut dr. Barré-Sinoussi Nóbelsverðlaunin í líf- og læknavísindum árið 2008 ásamt samstarfsmanni sínum, próf. Luc Montagnier. Fyrirlesturinn hefst klukkan tvö í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskóla Íslands

Vanmátu hættuna á flóðbylgjum

Japanir vanmátu hættuna á því að flóðbylgja gæti skollið á kjarnorkuverum landsins líkt og gerðist í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir þann ellefta mars síðastliðinn. Þetta kemur fram í drögum að nýrri skýrslu sem Alþjóðakjarnorkumálastofnunin er að gera.

Höfuðkúpubraut sambýliskonuna

Karlmaður hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að ráðist á þáverandi sambýliskonu sína og veita henni áverka á heimili þeirra í júlí á síðasta ári. Konan höfuðkúpubrotnaði og var í framhaldinu flutt á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Maðurinn sagði í skýrslutöku konan hefði ráðist á hann með skærum í kjölfar rifrildis og því hafi verið um sjálfsvörn að ræða.

Dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir nauðgun

Eggert Kári Kristjánsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa nauðgað stúlku á heimili sínu í maí á síðasta ári.

"Það er ekki okkar markmið að sekta"

"Það er ekki okkar markmið að sekta. Ef við þurfum ekki að sekta einn einasta ökumann þá erum við sáttir,“ segir Kristján Guðnason lögreglumaður. Fjöldi ökumanna hefur verið sektaður að undanförnu fyrir að leggja ólöglega þegar þeir sækja kappleiki eða fjölskylduhátíðir. Margir þessara ökumanna hafa lýst yfir óánægju sinni með þetta. Lögregla hefur hins vegar ítrekað vakið athygli á því fyrir stóra viðburði að ökumenn sem leggi ólöglega megi búast við því að fá sektir, og þeim bent á að koma á hjólandi, gangandi eða einfaldlega leggja í nokkurra mínútna göngufjarlægð.

Um 35 þúsund börn á flótta í Súdan

Aukin átök í Súdan hafa hrakið tæplega 35 þúsund börn brott frá heimilum sínum undanfarnar tvær vikur. Þetta er mat Barnaheilla – Save the Children sem vara við því að mörg þeirra barna sem orðið hafa viðskila við fjölskyldur sínar, eigi mjög á hættu að verða fyrir alvarlegu andlegu áfalli og misnotkun.

Skuldar 6,4 milljónir í dagsektir vegna Baldursgötu

Dagsektir hrannast upp hjá Baldursgötu ehf. vegna húss við Baldursgötu 32. Íbúar við Þórsgötu krefjast þess að Reykjavíkurborg grípi til aðgerða. Verstu mistök sem ég hef gert eru að kaupa þessi hús, segir eigandinn.

Hryssa kastaði tveimur sprækum folöldum

„Þetta var reglulega óvænt,“ segir Guðjón Antonsson á Hvolsvelli um hryssu sína sem kastaði tveimur folöldum aðfaranótt mánudags. Hryssan er ásamt fleiri hrossum á Skeggjastöðum í Vestur-Landeyjum. Sjaldgæft er að hryssur eignist tvíburafolöld.

Mladic kominn til Haag

Ratko Mladic, sem sakaður er um þjóðarmorð í Bosníustríðinu árið 1995 hefur eytt fyrstu nótt sinni í fangaklefa í Haag í Hollandi en þangað var hann fluttur í gær eftir að áfrýjun hans var hafnað. Hinn 69 ára gamli fyrrverandi hershöfðingi, sem handtekinn var í síðustu viku, mun mæta fyrir rétt strax á næstu dögum.

Lyklaþjófar ollu milljónatjóni

Árósar Borgaryfirvöld í Árósum í Danmörku hafa þurft að skipta um lása í um 250 stofnunum í borginni með kostnaði sem hleypur á milljónum. Þjófar komust yfir lykla og lykilnúmer, merkt viðeigandi stofnunum, í innbroti á skrifstofur hreingerningafyrirtækis.

Segja Svíana hindra hraðlest

Ólíklegt er að hugmyndir norskra samgönguyfirvalda um hraðlest milli höfuðborga Norðurlanda verði að veruleika í bráð. Í Noregi hefur undanfarið verið unnið að undirbúningi lestar sem færi á allt að 330 kílómetra hraða á klukkustund milli Óslóar, Stokkhólms og Kaupmannahafnar en Svíar taka ekki í mál að leyfa meiri hraða en 250.

Upphæð bóta til fórnarlamba ofbeldis óbreytt í 15 ár

Bætur úr ríkissjóði til þolenda ofbeldisbrota hafa verið óbreyttar frá árinu 1996 og eru langtum lægri en bætur í nágrannalöndunum. Um 130 til 160 milljónir króna eru greiddar úr ríkissjóði ár hvert til þolenda ofbeldisbrota. Frá 2006 hafa borist um 400 umsóknir á ári um bætur. Um 25 prósentum umsóknanna er hafnað.

Ágústi hlíft gegn þátttöku í Exeter-fléttunni

Dómsmál Daginn eftir að MP banki hótaði að gjaldfella lán til félags í eigu Ágústs Sindra Karlssonar, nánasta viðskiptafélaga Margeirs Péturssonar, fékk sama félag 50 milljóna lán frá bankanum sem framlag í Exeter-fléttuna svokölluðu. Tölvupóstsamskipti benda til þess að Ágúst Sindri hafi sloppið við gjaldfellinguna gegn þátttöku í fléttunni.

Leggja til algjört bann við lundaveiðum

Náttúrustofa Suðurlands leggur til algjört bann við lundaveiði í Vestmannaeyjum í ár og að sömuleiðis verði bannað að tína svartfuglsegg í eyjunum í ár.

Lá við strandi við Straumsvík

Stór seglskúta, með þremur íslendingum um borð, átti ekki nema um það bil tuttugu metra ófarna upp í grýtta fjöruna í grennd við Straumsvík í gærkvöldi, þegar skipverjum tókst að koma vél hennar aftur í gang og beina henni frá landi. Hana hafði þá rekið hratt að landi eftir að vélin bilaði, seglabúnaður var ekki um borð, og ankerið náði ekki botnfestu.

Atvinnuflugmenn til sáttasemjara

Félag íslenskra atvinnuflugmanna hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins fyrir hönd Icelandair til Ríkissáttasemjara. Á heimasíðu félagsins segir að samningar hafi verið lausir frá því í lok janúar og að síðan þá hafi lítið sem ekkert þokast í samkomulagsátt.

Segir grunnlögin vernda brotamenn

Arnar Jensson, tengifulltrúi Íslands hjá Europol, hefur, í eigin nafni en ekki sem fulltrúi yfirvalda, sent inn erindi til stjórnlagaráðs um að eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar verði tekið til sérstakrar skoðunar. Ástæðan er mat Arnars um að eignarréttur njóti meiri lagaverndar á Íslandi en í flestum öðrum löndum. Eins og ákvæðið er núna kemur það í veg fyrir að hægt sé að setja í lög alþjóðlega viðurkennd úrræði sem auðvelda yfirvöldum að ná til baka ólögmætum ávinningi af brotastarfsemi.

Útboð byggingar nýs fangelsis að bresta á

Útboð byggingar nýs fangelsis er að bresta á, að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra. Málið er á dagskrá ríkisstjórnarinnar næstkomandi föstudag.

Banninu fagnað innan íþróttahreyfingarinnar

Framtak Skautafélagsins Bjarnarins í baráttu gegn munntóbaksnotkun er mikið fagnaðarefni, segir Líney Rut Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ).

Fjögur aðildarfélög BSRB náð samningi

Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, segir viðræður vegna kjarasamninga ganga vel og hafa fjögur aðildarfélög bandalagsins náð samkomulagi við viðsemjendur sína á síðustu dögum.

Stal skarti og snyrtivörum

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært konu á fertugsaldri fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot.

Ekkert vitað um uppruna

Sextán manns hafa látið lífið í Þýskalandi og fleiri löndum norðanverðrar Evrópu af völdum E.coli bakteríunnar, sem talið var að hafi borist úr gúrkum frá Spáni. Rannsókn hefur hins vegar leitt í ljós að E.coli bakterían, sem fannst í gúrkunum, er ekki sömu gerðar og E.coli bakterían sem valdið hefur dauðsföllunum.

VG forðast ekki að greiða virðisaukaskatt

Samfylkingin áréttir að flokkurinn hafi keypt þjónustu af fjölmörgum aðilum í hótel- og veitingahúsarekstri á síðustu árum. Í tilkynningu frá flokknum segir að Samfylkingin forðist ekki á nokkurn hátt að nýta þjónustu aðila sem tilheyri Samtökum ferðaþjónustunnar (SAF).

Fyrirtækjasöfnunin byrjar vel

Fjársöfnun meðal íslenskra fyrirtækja vegna eldgossins í Grímsvötnum fer vel af stað. Þegar hafa safnast 20 til 35 milljónir króna í sjóð sem settur var á fót til að veita bændum og starfsemi á gossvæðinu fjárhagslegan stuðning.

Sjá næstu 50 fréttir